Innlent

Sýknaður af ákæru um að brjóta á dóttur sinni yfir átta ára tímabil

Jón Þór Stefánsson skrifar
Landsréttur staðfesti í dag dóm Héraðsdóms Austurlands.
Landsréttur staðfesti í dag dóm Héraðsdóms Austurlands. Vísir/Vilhelm

Landsréttur staðfesti í dag sýknudóm Héraðsdóms Austurlands yfir manni sem var gefið að sök að nauðga og brjóta kynferðislega á dóttur sinni í nokkur skipti á árunum 2010 til 2018, þegar hún var sex til fjórtán ára gömul. Þessi brot áttu að hafa verið framin á heimili þeirra og í sumarbústað.

Í dómi héraðsdóms og Landsréttar er að finna ítarlegar lýsingar á mörgum mismunandi kynferðisbrotum, sem ekki verður fjallað nánar um í þessari frétt.

Framburður dótturinnar þótti að ýmsu leiti trúverðugur. Þó væru misræmi í honum. Þetta misræmi varðaði það til að mynda hversu oft hún sagði föður sinn hafa brotið á sér, en það fór frá því að vera einu sinni, upp í tíu sinnum, og síðan var það tuttugu sinnum.

Aðspurð út í misræmið sagðist hún hafa verið á „mjög vondum stað“ þegar hún gaf skýrslu hjá lögreglu. Hún hafi annað hvort ekki viljað muna eftir atvikum eða ekki viljað segja frá þeim.

Mundi ekki hvor braut á sér

Þá flæktust meint kynferðisbrot eldri bróður stúlkunnar í hennar garð fyrir málinu. Fyrir dómi var hún spurð út í ákveðin atriði er vörðuðu kynferðisbrot á henni, og hvort faðir hennar eða bróðir hafði framið tiltekinn verknað. Hún sagðist ekki muna hvor þeirra hafi gert það, eða jafnvel þeir báðir.

Fram kemur að meint brot bróðurins hafi ekki verið kærð til lögreglu.

Hins vegar þótti framburður föðurins hafa verið stöðugur í öllum aðalatriðum í lögregluskýrslum, fyrir héraðsdómi og í Landsrétti. Að mati dómsins rýrði ekkert trúverðugleika framburðar hans.

Líkt og áður segir var faðirinn sýknaður fyrir Landsrétti, líkt og í héraði. Á báðum dómstigum var ákveðið að málskostnaður yrði greiddur úr ríkissjóði.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×