Íslenski boltinn

Hans Viktor í KA

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Hans Viktor spilar áfram í gulu.
Hans Viktor spilar áfram í gulu. KA

Miðvörðurinn Hans Viktor Guðmundsson er genginn í raðir KA og mun spila með liðinu í Bestu deild karla í knattspyrnu á næstu leiktíð. Samningur hans á Akureyri gildir til 2025.

Hinn 27 ára gamli Hans Viktor hefur allan sinn feril leitað með uppeldisfélagi sínu Fjölni. Alls á hann að baki 81 leik í efstu deild með Fjölni sem og 73 í B-deild.

„Ég er mjög ánægður að fá góðan hafsent á besta aldri í liðið. Þegar við skoðuðum hann þá sáum við að hann tikkaði í mörg box hjá okkur. Hans Viktor er stór og fljótur strákur sem er einnig góður á boltanum. Það er einnig mjög mikilvægt að ég heyrði úr mörgum áttum að hann er topp karakter. Ég hlakka til að vinna með honum og hef fulla trú á að næstu ár verði hans bestu á ferlinum,“ sagði Hallgrímur Jónasson, þjálfari KA, um nýjasta leikmann félagsins.

„Hans Viktor er spennandi leikmaður sem verður gaman að sjá í nýjum gulum búning á næsta ári. Hann hefur haldið tryggð við Fjölni sem er aðdáunarvert en við teljum að KA sé rétti staðurinn fyrir hann að taka næsta skref sem fótboltamaður. Hann var í liði ársins í Lengjudeildinni á Fotbolti.net og er það því skemmtileg áskorun fyrir hann að sýna að hann geti einnig verið með betri miðvörðum Bestu deildarinnar,“ sagði Aðalbjörn Hannesson, yfirmaður knattspyrnumála hjá KA.

KA endaði sumarið í 7. sæti Bestu deildar karla með 41 stig. Liðið fór þá alla leið í bikarúrslit þar sem það beið lægri hlut gegn Víking.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×