Innlent

Arf­taki Bjarna Sæ­munds­sonar fær nafnið Þórunn Þórðar­dóttir

Atli Ísleifsson skrifar
Þórunn Þórðardóttir HF 300 verður sjósett í desember.
Þórunn Þórðardóttir HF 300 verður sjósett í desember. Stjr

Nýtt rannsóknaskip Hafrannsóknarstofnunar verður sjósett í skipasmíðastöðinni Astilleros Armón í Vigo á Spáni 15. desember næstkomandi og við sjósetningu mun skipið formlega hljóta nafnið Þórunn Þórðardóttir og einkennisstafina HF 300.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá matvælaráðuneytinu. Þar kemur fram að skipið muni draga nafn sitt af Þórunni Þórðardóttur sem hafi verið fyrsta íslenska konan með sérfræðimenntun í hafrannsóknum. Hún var meðal annars frumkvöðull í rannsóknum á frumframleiðni smáþörunga í hafinu við Ísland.

„Eitt helsta afrek Þórunnar voru rannsóknir og mat á heildarfrumframleiðni svifþörunga á Íslandsmiðum en svifþörungar eru undirstaða fæðukeðju hafsins. Þórunn var jafnframt á meðal fyrstu sjávarlíffræðinga til að nota geislakolsaðferð til að meta framleiðni í sjónum. Hún hlaut heiðursviðurkenningu Lýðveldissjóðs Alþingis fyrir framlag sitt til rannsókna á hafinu við Ísland. Þórunn lést 11. desember árið 2007,“ segir í tilkynningunni.

Þórunn Þórðardóttir var fyrsta íslenska konan með sérfræðimenntun í hafrannsóknum og var meðal annars frumkvöðull í rannsóknum á frumframleiðni smáþörunga í hafinu við Ísland.Stjr

Þar er haft eftir Svandísi Svavarsdóttur matvælaráðherra að þetta nýja og glæsilega skip auki verulega möguleika Íslendinga til hafrannsókna. „Ég hef í mínu embætti lagt mikla áherslu á sjálfbæra nýtingu á auðlindum hafsins, þetta eru því einstaklega ánægjuleg tímamót. Ekki skemmir fyrir að skipið skuli nefnt eftir svo merkri vísindakonu og frumkvöðli sem Þórunn Þórðardóttir var og að nafngiftin skuli tilkynnt á sjálfum kvennaverkfallsdeginum,“ segir Svandís.

Stefnt er að afhendingu skipsins til Íslendinga í október 2024 og verði þá siglt til landsins. 

„Þórunn Þórðardóttir HF 300 mun leysa af hólmi Bjarna Sæmundsson HF 30 sem hefur þjónað sem hafrannsóknaskip í 53 ár. Skipið er nær 70 m langt og um 13 m breitt. Mikil áhersla hefur verið lögð á að skipið verði eins umhverfisvænt og sparneytið og unnt er, um er að ræða tvíorkuskip með rafknúnum skrúfum. Meginorkugjafi er olía en einnig eru stórar rafhlöður um borð sem stuðla að betri orkunýtingu,“ segir í tilkynningunni.

Bjarni Sæmundsson hefur þjónað sem hafrannsóknaskip í 53 ár.Vísir/Vilhelm


Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×