Körfubolti

Guillermo Sánchez: Varnarleikurinn okkar er að drepa okkur

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Guillermo Sánchez, þjálfari Breiðabliks í Subway deild kvenna og leikmaður karlaliðs Breiðabliks.
Guillermo Sánchez, þjálfari Breiðabliks í Subway deild kvenna og leikmaður karlaliðs Breiðabliks. Vísir / Vilhelm

Það var ansi niðurlútur Guillermo Sánchez sem kom til tals við blaðamann eftir 71-92 tap Breiðabliks gegn Þór Ak. í 6. umferð Subway deildar kvenna. Breiðablik er enn sigurlaust það sem af er tímabils. 

„Þetta var auðvitað mjög svekkjandi, við getum ekki unnið leiki þegar við spilum svona slakan 1 á 1 varnarleik. Því fyrr sem við skiljum það, að við getum ekki keppt við lið sem skora 100 stig, þá verður þetta auðveldara fyrir okkur“ sagði Guillermo strax að leik loknum. 

Hann segir sitt lið hafa orðið undir á öllum sviðum leiksins í dag og fyllilega verðskuldað tapið. Er skortur á sjálfstrausti að hrjá liðið? 

„Vörnin var ekki til staðar, við töpuðum frákastabaráttunni, við lokuðum ekki á skotmennina þeirra og áttum skilið að tapa. En nei ég held ekki að lágt sjálfstraust sé vandamálið, við byrjuðum illa en komum mjög vel til baka. Það fer samt mikil orka í að elta allan leikinn og næst þurfum við að byrja mun betur.“

Breiðabliksliðið reyndi mikið fyrir sér frá þriggja stiga línunni í kvöld, sterkur varnarleikur Þórsara í teignum þvingaði þær í erfið skot við útjaðarinn. 

„Skotvalið hefði getað verið betra, en það var ekki aðalvandamálið. Við getum alltaf gert betur sóknarlega en það sem er að drepa okkur er varnarleikurinn okkar núna.“

Breiðablik mætir næst Stjörnunni eftir eina viku og vonast til að sækja sinn fyrsta sigur á tímabilinu þar. Þjálfarinn segir liðið hvergi bonkið og ætli að leggja hart að sér til að snúa genginu við. 

„Hvort sem við vinnum eða töpum, þá mætum við alltaf og leggjum inn vinnuna. Við treystum því að það sem við gerum muni virka, þetta sé allt hluti af okkar ferli og vonandi getum við komið af krafti í næsta leik“ sagði Guillermo að lokum. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×