Erlent

Segja þrjú þúsund börn látin

Samúel Karl Ólason skrifar
Ísraelar hafa gert liinnulausar og mannskæðar loftárásir á Gasaströndina.
Ísraelar hafa gert liinnulausar og mannskæðar loftárásir á Gasaströndina. AP/Hatem Ali

Sendiherra Palestínu gagnvart Sameinuðu þjóðunum segir þrjú þúsund börn hafa dáið í loftárásum Ísraela á Gasaströndina. Riyad Mansour, segir að stöðva þurfi sprengjuregnið.

Auk barnanna segir Mansour að um 1.700 konur séu látnar og í heildina hafi um sjö þúsund manns fallið loftárásunum. Hann segir langflest þeirra vera óbreytta borgara, samkvæmt frétt Sky News.

„Þetta eru glæpir. Þetta er villimennska,“ sagði Mansour.

Hann sagði einnig að ef sprengjuregnið og átökin yrðu ekki stöðvuð myndu þau vinda upp á sig og dreifast til annarra ríkja í Mið-Austurlöndum.

Sjá einnig: Innrás yrði gífurlega erfið og framhaldið ekki síður

Einn talsmanna Hamas-samtakanna, sem stjórna Gasaströndinni, sagði Sky í dag að um fimmtíu af þeim minnst 224 gíslum sem Hamas-liðar tóku í árásinni á Ísrael þann 7. október, hafi fallið í loftárásum Ísraela.

AP fréttaveitan segir loftárásir sem gerðar voru í dag hafa hæft flóttamannabúðir í Khan Younis í suðurhluta Gasa. Átta heimili í eigu sömu stórfjölskyldunnar hafi verið jöfnuð við jörðu og minnst fimmtán manns hafi fallið, þar af minnst einn drengur.

Hafa dregið úr aðstoð

Sameinuðu þjóðirnar hafa dregið úr aðstoð sinni við íbúa á gasa, þar sem eldsneytisbirgðir þeirra eru að klárast. Því hefur þurft að draga úr stuðningi við sjúkrahús, þar sem álag er gífurlegt, og bakarí.

BBC hefur eftir Julietta Touma, frá Sameinuðu þjóðunum, að aðstæðurnar á Gasaströndinni séu fordæmalausar. Verið sé að kyrkja tvær milljónir manna og lítil aðstoð berist þangað.

„Við erum stærstu hjálparsamtökin og við erum á barmi þess að hætta aðstoð okkar. Okkur er meinað að gera það sem allsherjarráð Sameinuðu þjóðanna hefur skipað okkur að gera. Það eina sem við biðjum um er að fá að vinna vinnuna okkar,“ sagði Touma.

Yfirvöld í Ísrael hafa meinað flutning eldsneytis inn á Gasaströndina á þeim grundvelli að það gæti reynst Hamas-samtökunum vel.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×