Innlent

Lyfið Spin­raza sam­þykkt fyrir full­orðna líka

Lovísa Arnardóttir og Helena Rós Sturludóttir skrifa
Ísak Sigurðsson, formaður FSMA samtakanna, segir félagið enn bíða eftir meðferðarleiðbeingunum en einhver skilyrði verða sett um notkun lyfsins.
Ísak Sigurðsson, formaður FSMA samtakanna, segir félagið enn bíða eftir meðferðarleiðbeingunum en einhver skilyrði verða sett um notkun lyfsins.

Lyfið Spinraza hefur nú verið samþykkt til notkunar fyrir fullorðna sem glíma við mænuhrörnunarsjúkdómnum Spinal Muscular Atrophy (SMA). Lyfið hefur hingað til aðeins verið til notkunar fyrir börn. Fólk með sjúkdóminn hefur barist fyrir þessari breytingu.

Ísak Sigurðsson, formaður FSMA samtakanna, segir að félagið hafi fengið þær gleðifréttir í dag að Lyfjastofnun hafi samþykkt greiðsluþátttöku hjá fullorðnum á lyfinu. Í tilkynningu á vef stofnunarinnar kemur fram að breytingarnar taki gildi 1. nóvember. 

Í tilkynningunni er farið yfir feril málsins og segir þar að ástæða þess að stofnunin endurskoðaði fyrri ákvörðun sína sé að um miðjan júlí var greiðsluþáttaka lyfsins samþykkt í Noregi fyrir fullorðna, með skilyrðum. Í Danmörku er greiðsluþátttaka samþykkt fyrir sjúklinga yngi en 25 ára, einnig með ákveðnum skilyrðum. 

„Um framkvæmd greiðsluþátttökumála í því sem snýr að leyfisskyldum lyfjum er í reglugerð einmitt kveðið á um að Lyfjastofnun skuli taka mið af því hvernig málum sé háttað annars staðar á Norðurlöndum,“ segir í tilkynningunni og jafnframt að stofnunin hafi heimild til að endurskoða fyrri ákvarðanir um greiðsluþátttöku lyfja, ýmist að beiðni hagsmunaaðila eða að eigin frumkvæði í ljósi breyttra aðstæðna eða nýrra upplýsinga.

Ellefu fengu ekki lyfið

Ísak er einn ellefu einstaklinga á Íslandi sem er með SMA sem hingað til hafði ekki fengið lyfið. Fjórir höfðu fengið það en alls eru fimmtán með sjúkdóminn á landinu.

Í tilkynningu Lyfjastofnunar til félagsins kom fram notkun lyfsins verði takmörkuð við nýjar meðferðarleiðbeiningar Landspítalans. Félagið hefur enn ekki fengið leiðbeiningarnar.

„Næsta skref hjá okkur er að ræða við okkar lækni um að fá lyfið. Við eigum reyndar eftir að sjá þessar meðferðarleiðbeiningar frá Landspítalanum en vonum að það verði engar hindranir þar.“


Tengdar fréttir

Að­gangur að lífs­nauð­syn­legum lyfjum við SMA strandar á fjár­magni!

Á föstudag var haft eftir Willum Þór Þórssyni, heilbrigðisráðherra í fjölmiðlum að notkun lyfsins Spinraza til að meðhöndla einstaklinga með taugahrörnunarsjúkdóminn Spinal Muscular Atrophy (SMA) sem eru 18 ára og eldri við upphaf meðferðar verði ekki samþykkt nema að undangengnu faglegu mati sem tryggi bæði öryggi lyfsins og nytsemi þess.

„Þetta þarf að vera faglegt mat“

Heilbrigðisráðherra segir að notkun lyfs við taugahrörnunarsjúkdómnum spinal muscular athrophy (SMA) verði ekki samþykkt nema að undangengnu faglegu mati. Nauðsynlegt sé að tryggja bæði öryggi notkunar lyfsins og að nytsemi hennar sé óyggjandi.

Skoða hvort fullorðnir með SMA geti fengið langþráð lyf: „Ég reikna með að við getum unnið þetta hratt“

Heilbrigðisyfirvöld skoða hvort tilefni sé til að leyfa fullorðnum með SMA hér á landi að fá lyf við sjúkdóminum í kjölfar ákvörðunar Norðmanna þess efnis. Hópur sjúklinga hefur undanfarið lýst langri baráttu við kerfið og kallað eftir aðgerðum. Heilbrigðisráðherra reiknar með að hægt verði að vinna málið hratt, enda ákallið sterkt. 

Sam­þykkið lyf við Spinal Muscular A­trop­hy fyrir 18 ára og eldri!

Kæri Willum Þór. Við erum ellefu einstaklingar sem erum með taugahrörnunarsjúkdóminn Spinal Muscular Atrophy (SMA) á ólíkum aldursskeiðum sem eigum það öll sameiginlegt að eiga okkur draum um lyf við sjúkdómi sem hefur mikil áhrif á vöðvastyrk, færni og hreyfigetu.

Ó­hugnan­legt og erfitt að finna líkamann hrörna meðan lyf eru í boði

Kona sem fær ekki lyf við taugahrörnunarsjúkdóminum SMA sökum aldurs segir stefnu íslenskra yfirvalda óskiljanlega en ljóst sé að kostnaður ráði för. Ákvörðun Norðmanna í dag um að leyfa fullorðnum að fá lyf við sjúkdóminum hljóti að hreyfa við íslenskum yfirvöldum. Það eitt að geta stöðvað sjúkdóminn, þó hún fengi enga færni til baka, væri guðsgjöf.

„Okkur versnar með hverjum deginum“

Sigrún Jensdóttir, á sextugsaldri, er ein ellefu einstaklinga á Íslandi sem er með taugahrörnunarsjúkdóminn Spinal Muscular Atrophy (SMA) og fær ekki lyf sem gætu hægt á hrörnuninni eða stöðvað hana vegna þess að hún er eldri en átján ára. Alls eru fimmtán einstaklingar með sjúkdóminn hér á landi. Sjúkdómurinn fer versnandi með degi hverjum og hefur Sigrún hingað til forðast tilhugsunina um framtíðina.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×