Lífið

Jói og Olla selja glæsihús í Kópavogi

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Olla og Jói hafa búið sér afar fallegt heimili í Kórahverfinu í Kópavogi.
Olla og Jói hafa búið sér afar fallegt heimili í Kórahverfinu í Kópavogi. Jóhannes Ásbjörnsson

Jóhannes Ásbjörnsson, athafnamaður og fyrrum fjölmiðlamaður, og eiginkona hans Ólína Jóhanna Gísladóttir, flugfreyja og jógakennari, hafa sett glæsilegt einbýlishús sitt við Drangakór í Kópavogi á sölu. Ásett verð fyrir eignina er 209 milljónir.

Í lýsingu eignarinnar á fasteiganvef Vísis kemur fram að eignin sé fyrir vandláta.

Um er að ræða fallegt 239 fermetra hús á þremur pöllum með allt að fimm metra lofthæð þar sem birtan flæðir á fallegan hátt. Samtals eru fimm svefnherbergi og þrjú baðherbergi.

Arkitekt hússins er Guðmundur Gunnlaugsson sem miðaði hönnun hússins að því að nýta staðsetningu, garð og útisvæði til hins ýtrasta en við húsið eru glæsilegar og skjólgóðar timburverandir úr viðhaldsfríum harðviði, heitur pottur og gufubaðshús með sturtu.

Eldhús, stofa og borðstofa er í samliggjandi og björtu rými umvafið fallegri hönnun.

Húsið er 239 að stærð á þremur hæðum.Eignamiðlun

Dönsk hönnun í forgrunni

Heimili Jóa og Ollu, eins og þau eru kölluð, er afar glæsilegt og hlýlegt og virðist dönsk hönnun heilla.

Á veggnum í stofunni má sjá hvítar og gráar Montana hillur, hönnun frá árinu 1982. Svanurinn og Sjöan, stólar hannaðir af danska hönnuðinum Arna Jacobsen í koníaksbrúnu leðri í rýminu færir því skemmtilega stemmningu.

Þá má sjá glæsilega hönnun frá danska vöruhúsinu Bang & Olufsen, hátalarann Beoplay A9, í dökk gráu.

Ljósin frá ítalska merkinu Flos, Arco gólflampinn og 2097 loftljósið, eru algjört augnayndi og setja punktinn yfir i-ið.

Stofan er björt og falleg.Eignamiðlun
Eldhús, stofa og borðstofa er í opnu og björtu rými.Eignamiðlun
Lofthæðin nær allt að fimm metrum í húsinu.Eignamiðlun
Sjónvarpsrými er á efri palli.Eignamiðlun
Hjónaherbergi er rúmgott með innangengdu fataherbergi.Eignamiðlun
Baðherbergi eru þrjú í húsinu.Eignamiðlun
Við húsið eru glæsilegar og skjólgóðar timburverandir úr viðhaldsfríum harðviði, heitur pottur og gufubaðshús með sturtu.Eignamiðlun





Fleiri fréttir

Sjá meira


×