Erlent

Ís­land greiddi ekki at­kvæði með til­­lögu um vopna­hlé á Gasa

Viktor Örn Ásgeirsson skrifar
Málið var rætt á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í dag.
Málið var rætt á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í dag. Twitter/UN

Ísland sat hjá í atkvæðagreiðslu um þingsályktunartillögu sem tekin var fyrir á þingi Sameinuðu þjóðanna um vopnahlé á Gasa. Noregur var eitt Norðurlanda sem greiddi atkvæði með tillögunni. Utanríkisráðuneytið segir að ekki hafi tekist að ná samstöðu um texta ályktunarinnar.

Allsherjarþing SÞ kallaði í dag eftir tafarlausu vopnahléi á Gasa. Áhersla var lögð á að hægt væri að koma lífsnauðsynlegum vistum yfir til fólks á svæðinu. Samkvæmt nýjustu upplýsingum Guardian hafa Ísraelar gefið í og stundað landhernað í auknum mæli.

Hér má sjá hvernig atkvæðagreiðslan fór.Twitter/UN

Jórdanía lagði tillöguna fram og 120 lönd studdu hana óbreytta. Kanada lagði til breytingu á tillögunni, sem 88 aðildarríki studdu, en þar var lögð meiri áhersla á fordæmingu Hamas. Breytingartillagan náði ekki fram að ganga.

Upphaflega tillagan var því samþykkt að lokum og kusu 120 lönd með tillögunni. 14 kusu á móti og 45 sátu hjá, þar á meðal Ísland. Eins og fyrr segir greiddi ekkert Norðurlandanna atkvæði með tillögunni, nema Noregur.

Utanríkisráðuneytið studdi tillöguna ekki óbreytta

Í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu segir að Ísland hafi komið afstöðu sinni skýrt á framfæri í atkvæðaskýringu að atkvæðagreiðslu lokinnni. Ísland hafi lagt áherslu á að mannúðarhlé til að tryggja tafarlausa mannúðaraðstoð, harmað gríðarlegt mannfall óbreyttra borgara og ítrekað að þá yrði að vernda.

„Nú undir kvöld voru greidd atkvæði um ályktun um ástandið sem Jórdanía, fyrir hönd ríkja Arabahópsins, hefur lagt fram og snúa mjög að mannúðarhliðinni. Því miður reyndist ómögulegt að ná samstöðu um texta ályktunarinnar sem tók ekki til grimmdarverka Hamas og tók ekki með beinum hætti á gíslatöku Hamas, en yfir 200 manns eru enn í haldi, þar af 30 börn,“ segir í tilkynningunni. 

Þá segir enn fremur: „Kanada lagði fram breytingartillögu þar að lútandi í þeirri von að ályktunin myndi spegla allar hliðar málsins. Hún hlaut ekki brautargengi, en tvo þriðju hluta atkvæða þurfti til að hún yrði samþykkt. Því var kosið um ályktunina óbreytta og var hún samþykkt með 120 atkvæðum gegn 14. Ísland sat hjá ásamt 44 öðrum ríkjum, þar með talið Norðurlöndunum, utan Noregs, Eystrasaltsríkjunum, Hollandi, Bretlandi og Þýskalandi. Ísland hefði stutt ályktunina hefði breytingartillaga Kanada náð fram að ganga.“

Ísland hafi kallað eftir því að hugað yrði að pólitískri lausn deilunnar, friði yrði komið á og lögð var áhersla á tveggja ríkja lausnina. Þá hörmuðu fulltrúar Íslands jafnframt að ekki hefði náðst samstaða á fundinum og að öryggisráðinu hafi ekki tekist að ná saman.

Fréttin hefur verið uppfærð.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×