Erlent

Stöðugar árásir og óreiða á Gasaströndinni

Samúel Karl Ólason skrifar
AP23301294347851
AP/Ohad Zwigenberg

Ísraelar gerðu í gærkvöldi umfangsmestu loft- og stórskotaliðsárásir á Gasaströndina frá því stríðið milli þeirra og Hamas-samtakanna hófst. Samhliða því var rafmagn, net- og símasamband tekið af svæðinu og hermenn sendir inn.

Ráðamenn í Ísrael sögðu frá því í morgun að hermenn þeirra væru enn inn á Gasaströndinni, sem gefur til kynna að ekki sé um áhlaup að ræða heldur að einhverskonar innrás sé hafin. Herinn segir að umfang árása á jörðu niðri verði aukið.

Leiðtogar Hamas segja að til átaka hafi komið í norðurhluta Gasa og hafa heitið því að berjast gegn Ísraelum af fullum krafti.

Ísraelar segjast hafa gert 150 loftárásir sem beindust gegn umfangsmiklum göngum Hamas-samtakanna undir Gasaströndinni.

Í frétt BBC segir að sprengingarnar á Gasa séu nærri því stöðugar og sömuleiðis heyrist skothríð frá norðurhluta svæðisins.

Þá berist svo gott sem engar upplýsingar frá Gasaströndinni sjálfri. Fréttamaður BBC á Gasaströndinni tókst að senda inn innslag í morgun þar sem hann lýsti aðstæðum sem „algerri óreiðu“.

Sendiherra Palestínu gagnvart Sameinuðu þjóðunum kallaði eftir því í gærkvöldi að sprengjuregnið á Gasaströndina yrði stöðvað. Sendiherra Ísraels staðhæfði þó að Ísraelar myndu ekki láta af árásum sínum fyrr en búið væri að útrýma Hamas-samtökunum.

Tedros Adhanom Ghebreyesus, yfirmaður Alþjóðaheilbrigðismálastofnunar, segir að samskiptaleysið geri sjúkraflutningamönnum ómögulegt að sækja sært fólk, samkvæmt frétt Reuters.

Ekki sé heldur hægt að finna skjól undan sprengjuregninu.

Samkvæmt heilbrigðisráðuneyti Gasastrandarinnar, sem stýrt er af Hamas-samtökunum, höfðu 7.326 Palestínumenn fallið í átökum Ísraela í gærkvöldi og 18.967 höfðu særst. Þá eru um 1,4 milljónir íbúa Gasastrandarinnar á vergangi innan svæðisins en Gasaströndin er eitt þéttbýlasta svæði jarðarinnar.

Um 1.400 Ísraelar féllu í árásum Hamas-samtakanna þann 7. október og þar af lang flestir óbreyttir borgarar. 5.431 er sagður hafa særst, bæði í áðurnefndum árásum og eldflaugaárásum og 250 þúsund Ísraelar hafa þurft að flýja heimili sín. Þá er talið að 229 gíslar séu í haldi Hamas á Gasa.

Árásirnar í gærkvöldi og í nótt voru mjög umfangsmiklar.


Tengdar fréttir

Ís­land greiddi ekki at­kvæði með til­­lögu um vopna­hlé á Gasa

Ísland sat hjá í atkvæðagreiðslu um þingsályktunartillögu sem tekin var fyrir á þingi Sameinuðu þjóðanna um vopnahlé á Gasa. Noregur var eitt Norðurlanda sem greiddi atkvæði með tillögunni. Utanríkisráðuneytið segir að ekki hafi tekist að ná samstöðu um texta ályktunarinnar.

Ráðherrar og herforingjar sagðir deila um innrás

Ísraelski herinn er tilbúinn til innrásar á Gasaströndina en ráðamenn ríkisins og æðstu leiðtogar hersins eru ósammála um hvernig innrásin ætti að fara fram og jafnvel hvort eigi að gera hana yfir höfuð. Þá er sagt ríkja trúnaðarleysi milli ráðamanna og herforingja.

Indverskir uppgjafarhermenn dæmdir til dauða í Katar

Átta indverskir uppgjafarhermenn hafa verið dæmdir til dauða í Katar. Mennirnir hafi verið teknir höndum á síðasta ári og lágu undir grun fyrir njósnir. Hvorki yfirvöld í Katar né Indlandi hafa gefið opinberlega út hverjar sakirnar eru.

Innrás yrði gífurlega erfið og framhaldið ekki síður

Ísraelskir hermenn gerðu í morgun áhlaup inn á norðurhluta Gasasvæðisins og sögðu ráðamenn þar að um undirbúning fyrir mögulega innrás væri að ræða. Innrás á Gasaströndina myndi hafa miklar hörmungar í för með sér og myndi taka langan tíma.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×