Innlent

„Ó­trú­lega aumingja­legt“

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingmaður Pírata.
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingmaður Pírata. Vísir/Vilhelm

Ísland sat hjá í atkvæðagreiðslu um ályktun sem tekin var fyrir á þingi Sameinuðu þjóðanna um vopnahlé á Gasa. Utanríkisráðuneytið segir að ekki hafi náðst samstaða í þinginu um tillögu sem breytti orðalagi ályktunarinnar á þá leið að grimmdarverk Hamas-samtakanna yrðu fordæmd í leiðinni. Þingmaður Pírata segir afstöðu Íslands aumingjalega.

Jórdanía lagði í gær fram ályktun um mannúðarhlé á Gasa og 45 lönd studdu hana óbreytta. Kanada lagði til breytingu á tillögunni, sem 88 aðildarríki studdu, en þar var lögð áhersla á fordæmingu Hamas. Breytingartillagan náði ekki fram að ganga. Upphaflega tillagan var því samþykkt að lokum og greiddu 120 lönd atkvæði með tillögunni.

Samkvæmt utanríkisráðuneytinu hefði Ísland hefði stutt tillöguna ef breytingin hefði náð fram að ganga.

„Aum afsökun“

Þingmaður Pírata segir um afstöðleysi að ræða.

„Gagnvart þeirri risavöxnu mannúðarkrísu sem er að eiga sér stað núna á Gasa. Það að sitja hjá þýðir að þú tekur ekki afstöðu gagnvart því sem er öllum augljóst: Það verður að koma á vopnahléi strax, það verður að koma vistum og nauðsynlegri hjálp til íbúa á Gasa strax. Það er ótrúlega sorglegt og skammarlegt að ríkisstjórn Íslands hafi ekki fengist til að kalla eftir tafarlausu vopnahléi, til þess að hægt sé að bjarga lífum og koma á lágmarksmannúð á Gasa,“ segir Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, Pírötum.

Í tillögunni hafi þegar verið að finna skýra fordæmingu á árásir á almenna borgara, sama hvaðan þær koma.

„Það er ótrúlega aum afsökun að fyrst að ítrustu kröfum Íslands um fordæmingu á árásum Hamas var ekki mætt, þá geti þau ekki kallað eftir vopnahléi til að bjarga lífum. Það er ótrúlega aumingjalegt.“

Afstaða Íslands birtist í atkvæðum þess

Í færslu sem Bjarni Benediktsson utanríkisráðherra birti á Facebook í dag sagði að krafa Íslands um tafarlaust mannúðarhlé væri skýr, þrátt fyrir að ekki hafi náðst samstaða á þinginu um fordæmingu hryðjuverka.

Þórhildur Sunna segir afstöðu Íslands fyrst og síðast birtast í því hvernig við greiðum atkvæði.

„Og þegar við sitjum hjá í jafn mikilvægu máli og þessu þá höfum við tekið afstöðu gegn mannúð, og það er ótrúlega sorglegt að verað vitni að því,“ segir Þórhildur Sunna.

Hún vilji gefa stjórnarliðum tækifæri til að standa með því sem hún voni að sé sannfæring þeirra, með því að gerast meðflutningsmenn að þingsályktun sem felur utanríkisráðherra að fordæma árásir Ísraelshers á Gasa, og kalla eftir tafarlausu vopnahléi. 

Þórhildur Sunna segist telja að afstaða Íslands í atkvæðagreiðslunni í gær skýrist fyrst og fremst af meðvirkni við Bandaríkin.

„Og Bjarni Benediktsson þorir ekki að gera neitt sem er í andstöðu við vilja Bandaríkjanna, það er það eina sem mér dettur í hug,“ segir Þórhildur Sunna.


Tengdar fréttir

Ís­land greiddi ekki at­kvæði með til­­lögu um vopna­hlé á Gasa

Ísland sat hjá í atkvæðagreiðslu um þingsályktunartillögu sem tekin var fyrir á þingi Sameinuðu þjóðanna um vopnahlé á Gasa. Noregur var eitt Norðurlanda sem greiddi atkvæði með tillögunni. Utanríkisráðuneytið segir að ekki hafi tekist að ná samstöðu um texta ályktunarinnar.

Stöðugar árásir og óreiða á Gasaströndinni

Ísraelar gerðu í gærkvöldi umfangsmestu loft- og stórskotaliðsárásir á Gasaströndina frá því stríðið milli þeirra og Hamas-samtakanna hófst. Samhliða því var rafmagn, net- og símasamband tekið af svæðinu og hermenn sendir inn.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×