Innlent

Segja að Ísland hefði átt að samþykkja ályktun um vopnahlé

Samúel Karl Ólason skrifar
Orri Páll Jóhannsson, er formaður þingflokks Vinstri grænna.
Orri Páll Jóhannsson, er formaður þingflokks Vinstri grænna. Vísir/Vilhelm

Þingmenn Vinstri grænna telja að Ísland hefði átt að samþykkja ályktun Jórdana á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í gærkvöldi. Ályktunin var um tafarlaust vopnahlé á Gasaströndinni en Ísland sat hjá.

Það ku hafa verið gert því ekki tókst að breyta tillögunni á þann veg að ódæði Hamas-liða í Ísrael yrðu fordæmd.

Í yfirlýsingu frá þingflokki Vinstri grænna segir að Ísland hefði átt að samþykkja ályktunina þó breytingarákvæði Kanada hefði ekki farið í gegn.

Sjá einnig: „Hvert dauðs­fall meðal al­mennra borgara er einu dauðs­falli of mikið“

„Telur þingflokkurinn að rétt hefði verið að styðja tillöguna sjálfa vegna umfangs mannúðarkrísunnar á Gaza. Þingflokkurinn tekur undir efni tillögunnar sem er í samræmi við málflutning íslenskra stjórnvalda,“ segir í yfirlýsingunni.

Þar segir að þingflokkurinn fordæmi árásir og morð á almennum borgurum skilyrðislaust og hvar sem er í heiminum. Þá krefst þingflokkurinn að farið sé skilyrðislaust eftir alþjóðlegum mannréttindalögum, að almennum borgurum sem haldið sé í gíslingu verði sleppt og leið lífsnauðsynja inn á Gasaströndina verði greidd tafarlaust.

Þingflokkur Vinstri grænna, sem er í ríkisstjórnarsamstarfi með Framsóknarflokknum og Sjálfstæðisflokknum segir að fyrir því eigi íslensk stjórnvöld áfram að tala.


Tengdar fréttir

Stöðugar árásir og óreiða á Gasaströndinni

Ísraelar gerðu í gærkvöldi umfangsmestu loft- og stórskotaliðsárásir á Gasaströndina frá því stríðið milli þeirra og Hamas-samtakanna hófst. Samhliða því var rafmagn, net- og símasamband tekið af svæðinu og hermenn sendir inn.

Ís­land greiddi ekki at­kvæði með til­­lögu um vopna­hlé á Gasa

Ísland sat hjá í atkvæðagreiðslu um þingsályktunartillögu sem tekin var fyrir á þingi Sameinuðu þjóðanna um vopnahlé á Gasa. Noregur var eitt Norðurlanda sem greiddi atkvæði með tillögunni. Utanríkisráðuneytið segir að ekki hafi tekist að ná samstöðu um texta ályktunarinnar.

Ráðherrar og herforingjar sagðir deila um innrás

Ísraelski herinn er tilbúinn til innrásar á Gasaströndina en ráðamenn ríkisins og æðstu leiðtogar hersins eru ósammála um hvernig innrásin ætti að fara fram og jafnvel hvort eigi að gera hana yfir höfuð. Þá er sagt ríkja trúnaðarleysi milli ráðamanna og herforingja.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×