Innlent

„Þref um texta og orða­lag“ lítil­vægt miðað að­stæður

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Orri Páll Jóhannsson er formaður þingflokks VG.
Orri Páll Jóhannsson er formaður þingflokks VG. Vísir/Steingrímur Dúi

Formaður þingflokks VG furðar sig á því að fulltrúar Íslands í allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna hafi setið hjá í atkvæðagreiðslu um ályktun um vopnahlé á Gasa í gær. 

Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna samþykkti í gær ályktun Jórdaníu um vopnahlé á Gasa, í sérstakri neyðarumræðu um ástandið þar.

Í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu kom fram að Ísland hefði samþykkt ályktunina, ef breytingatillaga Kanada hefði náð fram að ganga, en hún fól í sér aukna áherslu á fordæmingu á Hamas. Það gerði hún hins vegar ekki, og því sat Ísland hjá. 

Boðað var til mótmæla við utanríkisráðuneytið með nokkurra klukkustunda fyrirvara. Nokkur hundruð manns komu saman við ráðuneytið, en mótmælin voru boðuð af félaginu Ísland-Palestína. Formaður félagsins segir hjásetuna sérstakan heigulshátt.

„Í þessari ríkisstjórn er Sjálfstæðisflokkurinn með utanríkismálin. Þeir hafa alltaf stutt Ísrael, alltaf. Og þeir fara sínu fram með þessu,“ sagði Hjálmtýr Heiðdal, formaður Íslands-Palestínu.

Hjálmtýr Heiðdal, formaður félagsins Ísland-Palestína, á mótmælafundi við utanríkisráðuneytið í dag.Vísir/Steingrímur Dúi

Mæting á mótmælin hafi verið einkar góð, í ljósi þess hve þau voru boðuð með stuttum fyrirvara. Frá ráðuneytinu hélt hópurinn niður Laugaveg og á Austurvöll.

„Það hefur alltaf verið þannig að yfirgnæfandi meirihluti Íslendinga, í þeim könnunum sem hafa verið gerður, styður málstað Palestínu. Og það er sennilega bara að aukast, enda er að koma betur og betur í ljós hvert hlutskipti Palestínumanna er og hvernig alþjóðasamfélagið hefur svikið þá,“ sagði Hjálmtýr.

Segja ályktunina samhljóma stefnu Íslands

Þingflokkur Vinstri grænna sendi frá sér yfirlýsingu vegna málsins í dag. Flokkurinn teldi að samþykkja hefði átt ályktunina óbreytta. Þingflokksformaðurinn lýsir furðu á að fastanefnd Íslands hafi setið hjá.

„Sér í lagi í ljósi þess að ályktunin og orðalag hennar er í fullu samræmi við málflutning íslenskra stjórnvalda hingað til,“ segir Orri Páll Jóhannsson, formaður þingflokks VG.

Diljá Mist Einarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og formaður utanríkismálanefndar, sagði hins vegar við Morgunblaðið í dag atkvæðagreiðslan endurspeglaði afstöðu Íslands, og að ekki væri hægt að gefa afslátt þegar kæmi að því að fordæma hryðjuverk.

Orri segir mikilvægast að vopnahlé komist á sem fyrst.

„Allt þref um texta og orðalag er hjóm, í samhengi þess ástands sem er fyrir botni Miðjarðarhafs.“



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×