Innlent

Píratar kalla eftir afstöðu Alþingis

Samúel Karl Ólason skrifar
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, er formaður þingflokks Pírata.
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, er formaður þingflokks Pírata. Vísir/Vilhelm

Þingmenn Pírata ætla sé að leggja fram tillögu á Alþingi um að utanríkisráðherra eigi að kalla eftir tafarlausu vopnahléi af mannúðarástæðum á Gasaströndinni. Samkvæmt tillögunni á ríkisstjórnin einnig að fordæma árásir Ísraelshers á óbreytta borgara og borgaralega innviði Palestínu.

Í tilkynningu frá þingflokki Pírata segir að þingmönnum allra flokka hafi verið boðið að vera meðflutningsmenn tillögunnar.

Þingflokkurinn lýsir einnig yfir vonbrigðum með að Ísland hafi setið hjá í atkvæðagreiðslu allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna um ákalla etir vopnahlé á Gasaströndinni.

„Afstöðuleysi gagnvart jafnskelfilegri mannúðarkrísu og nú á sér stað jafngildir stuðningi við framferði Ísraelshers á Gaza og sýnir virðingarleysi gagnvart alþjóðalögum. Þessi sorglega afstaða ríkisstjórnarinnar kallar yfir okkur skömm og er ekki í okkar nafni,“ segir í tilkynningunni.

Þar segir einnig að hluti stjórnarþingmanna hafi um helgina lýst þeirri skoðun að rétt hefði verið af fulltrúum Íslands að styðja tillöguna á allsherjarþinginu og að þingflokkur Pírata hvetji þá til að sýna það í verki og gerast meðflutningsmenn þingsályktunartillögunnar. Meirihluti Alþingis geti knúið fram rétt afstöðu íslands á alþjóðavettvangi.

Deilt um breytingartillögu

Atkvæðagreiðslan sem fór fram í New York í fyrrakvöld snerist um ályktun um að mannúðarhlé á átökunum á Gasaströndinni. Tillagan var lögð fram af sendiherra Jórdaníu en Kanadamenn lögðu til breytingu þar sem bætt var við að árásir Hamas á Ísrael yrðu fordæmdar þess krafist að þeir gíslar sem Hamas-liðar tóku yrði sleppt.

Þessi breytingartillaga fékk samþykki meirihluta þjóða á allsherjarþinginu en þurfti atkvæði tveggja þriðju og náði því ekki fram að ganga.

Bjarni Benediktsson hefur sagt að Ísland krefjist mannúðarhlés og sú afstaða sé skýr, þó Ísland hafi setið hjá eftir að breytingartillaga Kanada var ekki samþykkt. Noregur var eitt Norðurlanda sem greiddi atkvæði með tillögunni.

Sjá einnig: „Hvert dauðsfall meðal almennra borgara er einu dauðsfalli of mikið“

Hjásetan hefur verið harðlega gagnrýnd og þar á meðal af þingflokki Vinstri grænna, og leiddi til þess að nokkur hundruð mótmælendur komu saman í miðbænum í gær.


Tengdar fréttir

Hjá­setan merki um fylgi­spekt við Banda­ríkin

Alþjóðastjórnmálafræðingur segir átökin í Ísrael og Palestínu teygja anga sína víða. Ljóst sé að ástandið hafi áhrif á alþjóðasamskipti fjölmargra ríkja. Hún telur hjásetu Íslendinga hjá Sameinuðu þjóðunum merki um fylgispekt við Bandaríkin.

Skyndimótmæli í miðbænum

Nokkur hundruð manns mættu á skyndimótmæli í miðbænum í dag. Félagið Ísland-Palestína boðaði í morgun til mótmælanna við utanríkisráðuneytið í dag, vegna þess að Ísland sat hjá í atkvæðagreiðslu á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna hlé á árásum Ísraela á Gasaströndinni.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×