Innlent

Katrín ekki höfð með í ráðum

Viktor Örn Ásgeirsson skrifar
Ekki var haft samráð við Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra þegar Ísland greiddi atkvæði á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna.
Ekki var haft samráð við Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra þegar Ísland greiddi atkvæði á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna. Vísir/Ívar

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra var ekki höfð með í ráðum þegar tekin var ákvörðun um að sitja hjá við atkvæðagreiðslu um tillögu Jórdaníu á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna um vopnahlé á Gasa. Hún segir að afstaða þingflokks VG sé skýr.

„Nei, það var nú ekkert samráð haft við mig. En hins vegar lá fyrir að afstaða Íslands var alveg skýr fyrir atkvæðagreiðsluna. Hún var sú að við styðjum vopnahlé af mannúðarástæðum, við teljum mjög brýnt að átökin verði stöðvuð, að það skapist líka færi til að koma hjálpargögnum og neyðarbirgðum inn á svæðið. Mín afstaða, og míns þingflokks, er hins vegar sú að mannúðarkrísan á þessu svæði sé slík að það hefði verið rétt í raun og veru að styðja tillöguna, einfaldlega vegna þess að ástandið er gríðarlega alvarlegt,“ sagði Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra í kvöldfréttum RÚV.

Hún segist skilja að fólk setji spurningarmerki við atkvæðagreiðsluna enda blasi við að neyðin sé mikil. Þegar hún er spurð að því hvort afgreiðsla Íslands komi á óvart svarar Katrín: „Kannski var ég bara að vona að það hefði náðst saman. Og auðvitað er það gríðarlega vont að það náist ekki saman, eða breiðari samstaða á vettvangi Sameinuðu þjóðanna á nálgun á þessi mál.“

Þingflokkur Vinstri grænna sagði í yfirlýsingu í gær að flokkurinn hefði viljað greiða atkvæði með tillögunni. Forsætisráðherra segir að haft hafi verið samband við utanríkisráðherra í tengslum við yfirlýsinguna en hún segist ekki getað svarað hver afstaða Bjarna Benediktssonar, utanríkisráðherra og þingflokksformanns Sjálfstæðisflokksins, sé í málinu. Hún segir almenna samstöðu ríkja innan ríkisstjórnarinnar.

„Ég hef gert grein fyrir minni afstöðu og míns þingflokks í þessu máli við mína félaga í ríkisstjórninni.  Eins og ég hef farið yfir þá er þetta ekkert einföld staða. Ég held að það sé ríkur skilningur, af því að um grundvallaratriðin erum við sammála. Og það er okkar stefna Íslendinga. Við höfum viðurkennt Palestínu sem sjálfstætt ríki, við tölum alltaf um tveggja ríkja lausn og þessi afstaða hefur komið skýrt fram,“ segir Katrín við RÚV að lokum.


Tengdar fréttir

„Ömur­legt að fylgjast með al­þjóða­sam­fé­laginu bregðast Ísraels­mönnum“

Diljá Mist Einarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og formaður utanríkismálanefndar, segir ömurlegt að fylgjast með alþjóðasamfélaginu bregðast Ísraelsmönnum. Hún segir hjáseta Íslands á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í samræmi við stefnur stjórnvalda. Fordæma eigi hryðjuverk Hamas en merki séu um að Ísraelar gangi of langt.

Hjá­setan merki um fylgi­spekt við Banda­ríkin

Alþjóðastjórnmálafræðingur segir átökin í Ísrael og Palestínu teygja anga sína víða. Ljóst sé að ástandið hafi áhrif á alþjóðasamskipti fjölmargra ríkja. Hún telur hjásetu Íslendinga hjá Sameinuðu þjóðunum merki um fylgispekt við Bandaríkin.

Ísraelar hafi farið yfir línuna

Jonas Gahr Støre forsætisráðherra Noregs skýtur föstum skotum á Ísraela og segir þá hafa gengið of langt. Hann kveðst átta sig á sjálfsvarnarrétti ríkja en telur aðgerðir ekki samræmast meðalhófi. Ísraelar vísa ummælunum á bug.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×