Fótbolti

Sjáðu blóðuga árás á liðsrútu Lyon í gær

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Fabio Grosso, knattspyrnustjóri Lyon, þurfti á læknishjálp að halda eftir árásina.
Fabio Grosso, knattspyrnustjóri Lyon, þurfti á læknishjálp að halda eftir árásina. Twitter

Ekkert varð af leik Marseille og Lyon í franska fótboltanum í gær og ástæðan er það sem gerðist þegar Lyon menn voru á leiðinni á völlinn.

Fabio Grosso, knattspyrnustjóri Lyon, þurfti nefnilega á læknishjálp eftir árás stuðningsmanna Marseille á liðsrútu Lyon.

Hann slasaðist illa í andliti og það sáust myndir af honum alblóðugum þegar liðið náði loksins í skjól á leikvanginum.

Stuðningsmenn grýttu rútuna með steinum og brutu rúðu í rútunni. Grosso fékk aðskotahluti í andlitið eftir að ein rúðan hafði brotnað.

Grosso og aðstoðarmaður hans Raffaele Longo slösuðust báðir í árásinni.

Lyon sendi frá sér yfirlýsingu þar sem sagt var meðal annars að svona hlutir gerist á hverju einasta ári í Marseille.

Marseille fordæmdi hegðun stuðningsmanna sinna og sagði þetta óásættanlegt atvik.

Hér fyrir neðan má sjá upptöku af því þegar steinarnir dynja á rútunni og rúðurnar brotna.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×