Sport

Skyndiákvörðun Anníe og Katrínar Tönju vakti mikla lukku

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Anníe Mist Þórisdóttir og Katrín Tanja Davíðsdóttir fengu mikil og góð viðbrögð frá áhorfendum þegar þær ákváðu að vera með.
Anníe Mist Þórisdóttir og Katrín Tanja Davíðsdóttir fengu mikil og góð viðbrögð frá áhorfendum þegar þær ákváðu að vera með. @anniethorisdottir

Dave Castro, einn af hæstráðendum í CrossFit samtökunum, gefur okkur oft forvitnilegt innlit á bak við tjöldin á CrossFit mótum og hann sagði skemmtilega sögu af okkar konum á Rogue Invitational mótinu um helgina.

Anníe Mist Þórisdóttir og Katrín Tanja Davíðsdóttir fengu báðar boð um að vera með á Rogue Invitational í ár. Anníe þáði sitt boð en Katrín ákvað að taka sér frí eftir heimsleikana. Anníe hætti síðan við þátttöku eftir að hún komst að því að hún væri ólétt.

Anníe og Katrín mættu samt báðar til Texas og fyrsta grein keppninnar, sem Tia-Clair Toomey vann í endurkomu sinni eftir barnsburð, kveikti heldur betur í okkar konum.

Castro grínaðist með það að Frederik Ægidius hafi þurft halda aftur af þeim svo þær myndu ekki rjúka inn á keppnisgólfið.

Castro sagði líka að seinna um kvöldið hafi Anníe komið með hugmyndina að því að hún og Katrín yrðu með í Legends, sýningakeppni goðsagnanna, sem þær höfðu ekki planað áður.

„Anníe snéri sér að Katrínu og sagði: Förum saman í Legends keppnina. Megum við það spurði Katrín og fékk strax jákvætt svar frá Caity Henniger,“ lýsti Dave Castro.

„Þetta gerðist svo hratt að mínútu fyrir æfinguna þá vissu Anníe og Katrín varla í hvað þær voru að fara út í,“ skrifaði Castro. Þær fengu að vita það og keyrðu svo á þetta.

Vinkonurnar ákváðu að taka þessa skyndiákvörðun og hún féll vel í kramið hjá áhorfendum enda margir aðdáendur íslensku heimsmeistaranna í þeim hópi.

„Fólk stendur á fætur og reynir að koma auga á sitt uppáhald enda eru þetta fólkið sem hjálpaði að setja CrossFit íþróttina á kortið. Svo þegar þau koma auga á Anníe Þórisdóttur og Katrínu Tönju þá fer kliður um áhorfendaskarann,“ lýsti Castro í færslu sinni. Það má lesa þessa lýsingu og sjá myndir af okkar konum hér fyrir neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×