Lífið

Þekktir og ein­hleypir karl­menn

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Í samráði vel valda álitsgjafa setti Lífið á Vísi saman lista af karlmönnum sem eiga það sameignlegt að vera þekktir og einhleypir.
Í samráði vel valda álitsgjafa setti Lífið á Vísi saman lista af karlmönnum sem eiga það sameignlegt að vera þekktir og einhleypir.

Íslenskir karlmenn eru misjafnir eins og þeir eru margir. Í samráði vel valda álitsgjafa setti Lífið á Vísi saman lista af karlmönnum sem eiga það sameignlegt að vera þekktir og einhleypir.

Kristófer Acox, körfuboltamaður (1993)

„Huggulegur, hávaxinn og íþróttalega vaxinn, hvað viltu meira?“

Arnar Halldórsson

Sigurbjartur Sturla Atlason, leikari og tónlistarmaður (1992)

„Sturla Atlas er hæfileikraríkur fjöllistamaður með fallegt bros og góða nærveru. Góður vinur sem allir elska!“

Andri Freyr Viðarsson, fjölmiðlamaður (1980)

„Lúmskur húmor sem kitlar hláturtaugar hverra dömu sem hittir kappann. Hann er með nýjustu fréttir á hreinu og hvers manns hugljúfi.“

Andri Freyr

Daniil Moroshkin, íslensk-rússneskur tónlistarmaður og rappari (2001)

„Ungur, efnilegur og good looking!“

Dóra Júlía

Kristmundur Axel Kristmundsson (1993)

„Einlægi töffarinn sem passar vel upp á sína nánustu. Augu sem heilla allar konur upp úr skónum og rödd bræðir alla sem hlusta.“

Kristmundur Axel KristmundssonAðsend

Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson, þekktur sem Villi Vill, lögmaður (1971)

„Blíði naglinn sem veit hvað hann syngur þegar kemur að nýjustu tísku og lögmennsku.“ 

Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson, þekktur sem Villi Vill.Vísir/Vilhelm

Nökkvi Fjalar Orrason, frumkvöðull (1994)

„Jákvæður, bjartur og brosandi heilræðagúrú með þéttustu skeggrót sem ég hef séð.“

Nökkvi Fjalar Orrason.

Björn Boði Björnsson flugþjónn og World Class-erfingi (1999)

„Vöðvastælta kyntáknið Björn Boði er augnakonfekt háloftanna. Eruði að sjá manninn?“

Björn Boði

Sigmar Guðmundsson, þingmaður Viðreisnar (1969)

„Fyndinn, eldklár og með öll svörin á hreinu. Það elska allir Simma, það er bara þannig.“

Sigmar Guðmundsson

Birkir Blær Ingólfsson, rithöfundur (1989)

„Blíða hæfileikabúnktið sem sjarmerar allar skvísur upp úr skónum, sannkallaður draumur allra tengdamæðra.“

Birkir Blær Ingólfsson.

Leifur Welding, hönnuður og framkvæmdamaður (1976)

„Seiðandi blá augu og sjarmerandi bros. Þú getur verið viss um að heimilið og klæðnaðurinn er upp á tíu. Svo má ekki gleyma hvað hann er flinkur í eldhúsinu.“

Leifur Welding

Bergsteinn Sigurðsson, fjölmiðlamaður (1979)

„Huggulegur, hnyttinn, hrókur alls fagnaðar og frændi Hilmis Snæs, hvað eru mörg H í því?“

Bergsteinn

Egill Ólafsson og Karlakórinn Fóstbræður flytja hið þjóðþekkta lag, Íslenskir karlmenn, í spilaranum hér að neðan.


Tengdar fréttir

Heitir í háloftunum

Karlkyns flugþjónum, eða heitum háloftaprinsum, hefur fjölgað ört á síðastliðnum árum. Í gegnum tíðina hafa konur verið kenndar við starfið út frá gömlum staðalímyndum. Flugfreyjur áttu að vera ógiftar og snotrar í vexti.

Glæsilegustu einhleypu konur landsins

Íslenskar konur þykja þær fallegustu í heimi. Við hjá Lífinu á Vísi erum sammála þeirri kenningu. Í samráði við vel valda álitsgjafa settum við saman lista af einhleypum og glæsilegum íslenskum konum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×