Sport

Anníe Mist agn­dofa yfir endur­komu Tiu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Anníe Mist Þórisdóttir með dóttur sinni Freyju Mist. Anníe veit vel hvað Tia var að ganga í gegnum.
Anníe Mist Þórisdóttir með dóttur sinni Freyju Mist. Anníe veit vel hvað Tia var að ganga í gegnum. @anniethorisdottir

Anníe Mist Þórisdóttir sýndi CrossFit heiminum hvernig á að koma til baka eftir barnsburð og nú hefur Ástralinn Tia-Clair Toomey fetað í fótspor hennar.

Toomey eignaðist dóttur í maí en sneri aftur á Rogue Invitational stórmótinu um helgina þar sem hún náði öðru sæti. Anníe hafði áður komist á verðlaunapall innan við ári eftir að hún eignaðist dóttur sína Freyju Mist.

Það munaði líka ótrúlega litlu að Toomey tækist að vinna nýkrýndan heimmeistara Lauru Horvath þrátt fyrir að hafa eignast barn fyrir aðeins fimm mánuðum.

Anníe ætlaði að taka þátt í mótinu en hætti við þegar hún komst að því að hún væri ófrísk að sínu öðru barni. Anníe mætti samt á staðinn og hitti aðdáendur sína. Þau fengu ekki að sjá hana keppa við þær bestu en fögnuðu því að geta hitt hetjuna sína.

Anníe sá þá frá fyrstu hendi hvernig ofurmanneskjan Toomey gerði frábæra hluti svo stuttu eftir barnsburð. Anníe hrósaði líka sexfalda heimsmeistaranum.

„Þvílík helgi. Ég fékk aðeins að stíga einu sinni inn á gólfið en það var góð tilfinning. Ég fékk að setjast í öðruvísi sæti þar sem ég lýsti því þegar þau bestu voru að gefa allt sitt í þetta. Saknaði ég þess að keppa ekki? Já. Naut ég þess að horfa? Auðvitað gerði ég það,“ skrifaði Anníe Mist.

Anníe tjáði sig líka sérstaklega um kvennakeppnina.

„Tia-Clair Toomey og Laura Horvoth háðu þvílíka keppni. Vá. Ég sendi hamingjuóskir til Lauru en með sigri sýndi hún hversu ótrúlega sterk hún er og góð að keppa,“ skrifaði Anníe.

„Og svo Tia. Það er engin orð til að lýsa því sem hún gerði þessa helgi. Algjörlega rugluð frammistaða. Gerði það ómögulega á ný. Ég er agndofa,“ skrifaði Anníe.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×