Sport

Katrín Tanja fann sig vel í nýju hlut­verki á Rogue mótinu: Elskar að lýsa

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Katrín Tanja Davíðsdóttir með þeim Anníe Mist Þórisdóttur og Anikhu Greer á Rogue Invitational um síðustu helgi.
Katrín Tanja Davíðsdóttir með þeim Anníe Mist Þórisdóttur og Anikhu Greer á Rogue Invitational um síðustu helgi. Instagram/@katrintanja

Katrín Tanja Davíðsdóttir þáði ekki boð um að keppa á Rogue Invitational CrossFit mótinu í ár en mætti engu að síður til Texas og var auðvitað mjög vel tekið enda ein vinsælasta CrossFit kona heims.

Árangur Katrínar Tönju á heimsleikunum hafði skilað henni boð inn á mótið en hún valdi það frekar að hvíla sig vel eftir átökin í haust og ferðaðist um heiminn.

Forráðamenn Rogue Invitational sóttust samt sem áður eftir að fá hana til að mæta á mótið þar sem hún fékk að taka þátt í alls kyns viðburðum í tengslum við það. Óhætt er að segja að það hafi líka verið nóg að gera hjá okkar konu þessa helgi þrátt fyrir að hún hafi ekki verið að keppa sjálf.

Katrín og Anníe Mist Þórisdóttir vöktu mikla lukku þegar kepptu hlið við hlið í Legends keppninni en það var ákvörðun sem var tekin með stuttum fyrirvara.

Katrín gerði Rogue Invitational mótið upp með skemmtilegri myndasyrpu á samfélagsmiðlum sínum.

„Ég sat í allt öðru sæti en ég er vön en þetta er alltaf jafn gaman,“ skrifaði Katrín Tanja.

„Ég gerði mikið af því að lýsa keppninni. Þetta er í fyrsta sinn sem ég prófa það og ég vissi því ekki hverju ég ætti von á. Ég elskaði það,“ skrifaði Katrín.

Hún hrósar framkvæmdinni hjá Rouge og segir að þetta mót sé alltaf svo vel heppnað.

„Ég æfði á hverjum morgni en alls ekki nógu mikið. Ég hitti fullt af vinum og hefði bara þurft meiri tíma í sólarhringinn,“ skrifaði Katrín en það má sjá myndirnar hér fyrir neðan.

Ef að Instagram færslan birtist ekki ætti að vera nóg að endurhlaða fréttinni í vafranum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×