Innlent

Ís­lenska ríkið sýknað og kröfu Björns vísað frá dómi

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Björn Þorláksson, blaðamaður og fyrrverandi upplýsingafulltrúi Umhverfisstofnunar.
Björn Þorláksson, blaðamaður og fyrrverandi upplýsingafulltrúi Umhverfisstofnunar. Vísir/Aðsend

Landsréttur hefur sýknað íslenska ríkið og snúið við dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í máli sem blaðamaðurinn Björn Þorláksson höfðaði gegn Kjara-og mannauðssýslu ríkisins. Kröfu Björns um miskabætur vegna uppsagnar hans árið 2021 hefur því verið vísað frá.

Landsréttur kvað upp dóm sinn klukkan tvö. Björn stefndi ríkinu árið 2021 ári á þeim grundvelli að ólöglega hafi verið staðið að því þegar staða hans hjá Umhverfisstofnun var lögð niður.

Forsaga málsins er sú að Björn var fyrirvaralaust kallaður á fund með forstjóra stofnunarinnar og mannauðsstjóra í nóvember árið 2020. Honum var þar afhent bréf þar sem honum var tilkynnt um verulegar breytingar á verkefnaskipulagi og áherslum tengdum starfi hans

Þá var honum boðið að taka þátt í hæfnismati, sem hann þáði með þeim fyrirvara að það stæðist lög, sem hann efaðist um. Í janúar á þar síðasta ári var Birni síðan tilkynnt að leggja ætti starf upplýsingafulltrúa niður.

Um mánuði síðar auglýsti Umhverfisstofnun starf sérfræðings í stafrænni þróun, fræðslu og miðlun til umsóknar.

Héraðsdómur Reykjavíkur sagði ljóst að verkefnalýsingu þess starfs að um væri að ræða verkefni sem Björn hafi sem upplýsingafulltrúi sinnt áður.

Sagði að íslenska ríkinu hefði fyrir hönd Umhverfisstofnunar ekki tekist að sýna fram á með áherslubreytingum sem gera átti á starfinu, aukið námskeiðahald um fjarfundabúnað og fjölbreyttari notkun samfélagsins, að ekki mætti gera ráð fyrir því að Björn gæti fullnægt þeim breyttu kröfum sem hið nýja starf fól í sér.

Var ríkinu gert af Héraðsdómi að greiða Birni 6,8 milljónir króna vegna málsins, þar af þrjár milljónir í miskabætur. Landsréttur hefur nú sýknað íslenska ríkið af þeirri kröfu.


Tengdar fréttir

Hélt það væri nóg komið en íslenska ríkið á­frýjar

Kjara- og mannauðssýsla ríkisins hefur áfrýjað dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í máli sem blaðamaðurinn Björn Þorláksson höfðaði gegn stofnuninni. Björn segist ekki hafa áhyggjur af því að dómsniðurstaðan muni breytast fyrir Landsrétti.

Fyrr­verandi upp­lýsinga­full­trúi fer fram á 23 milljónir

Björn Þorláksson, fjölmiðlamaður og fyrrverandi upplýsingafulltrúi Umhverfisstofnunar, hefur höfðað bótamál á hendur íslenska ríkinu á grundvelli þess að staða hans hjá Umhverfisstofnun hafi verið lögð niður með ólögmætum hætti. Hann fer fram á tveggja ára laun og miskabætur, en krafan nemur samtals 23 milljónum króna.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×