Innlent

Segir engan á­greining ríkja um af­stöðu Ís­lands

Heimir Már Pétursson og Margrét Björk Jónsdóttir skrifa
Bjarni Benediktsson hélt því fram í umræðunum í dag að enginn ágreiningur væri innan ríkisstjórnarinnar um stefnu stjórnvalda gagnvart átökum Palestínumanna og Ísraels.
Bjarni Benediktsson hélt því fram í umræðunum í dag að enginn ágreiningur væri innan ríkisstjórnarinnar um stefnu stjórnvalda gagnvart átökum Palestínumanna og Ísraels. Vísir/Vilhelm

Utanríkisráðherra segir engan ágreining ríkja um afstöðu Íslands varðandi átökin fyrir botni Miðjarðarhafs. Farsælast væri að Alþingi sameinaðist um þau grundvallargildi sem allir væru sammála um.

Formenn Samfylkingarinnar og Viðreisnar ásamt þingmanni Pírata spurðu Bjarna Benediktsson utanríkisráðherra út í afstöðu Íslands og ekki hvað síst ríkisstjórnarinnar til átakanna fyrir botni Miðjarðarhafs í fyrirspurnartíma á Alþingi í dag. Þá hafa að minnsta kosti tvær tillögur verið boðaðar á þinginu vegna málsins, önnur frá Pírötum og hin frá Viðreisn. Tveir þingmenn Vinstri grænna og þingflokkur Samfylkingarinnar flytja tillöguna með Pírötum.

Málið er líka heitt meðal almennings og þegar þingmenn mættu til starfa í morgun var búið að skrifa orðið „Vopnahlé" með stórum stöfum á götuna fyrir framan þinghúsið.

Þegar þingmenn mættu til starfa í morgun var búið að skrifa orðið „Vopnahlé" með stórum stöfum á götuna fyrir framan þinghúsið.Vísir/Sunna Sæmundsdóttir

Bjarni Benediktsson hélt því fram í umræðunum í dag að enginn ágreiningur væri innan ríkisstjórnarinnar um stefnu stjórnvalda gagnvart átökum Palestínumanna og Ísraels. Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingarinnar sagði ágreininginn hins vegar augljósan.

„Ef utanríkisráðherra segir eitt en forsætisráðherra annað, hvort gildir?“ spurði Kristrún.

„Ef utanríkisráðherra segir eitt en forsætisráðherra annað, hvort gildir?“ spurði Kristrún Frostadóttir á Alþingi í dag.Vísir/Vilhelm

„Hvort gildir utanríkisstefna utanríkisráðherrans eða það sem höfuð ríkisstjórnarinnar segir í kjölfarið þegar hún lýsir opinberri andstöðu við ákvörðun utanríkisráðherra?“

Sammála hverju orði úr væntanlegri þingályktun Viðreisnar

Bjarni Benediktsson, utanríkisráðherra, sagði of djúpt í árina tekið og beinlínis rangt að sú afstaða sem birtist hjá forsætisráðherra og þingflokki Vinstri grænna sé í andstöðu við þá utanríkisstefnu sem Ísland kynnti á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, greindi frá því að Viðreisn hefði lagt fram þingsályktunartillögu sem vonandi yrði rædd seinna í vikunni. Frumkvæðið hefði ekki komið frá ríkisstjórninni sem væri sundruð í þessu máli. 

„Viðreisn ætlar hins vegar að leggja fram þingsályktunartillögu í dag sem verður vonandi rætt seinna í vikunni. Efnislega sú sama og Kanada lagði fram á allsherjarþinginu. Sem allar þjóðir Evrópu studdu, um að Alþingi fordæmi hryðjuverkaárásir Hamas á almenna borgara í Ísrael og árásir Ísraelshers gegn almennum borgurum og borgaralega innviði á Gaza í kjölfarið.“

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar,sagði ríkisstjórnina sundraða þegar kemur að afstöðu til átakanna á botni Miðjarðarhafs.Vísir/Vilhelm

Bjarni sagðist sammála hverju orði sem Þorgerður las úr væntanlegri þingsályktun,. 

„Ég vona að það sé einhver göfugri tilgangur að baki því að leggja hér nú fram hverja þingsályktunartillöguna á eftir annarri þar sem þingið virðist ætla að vera sundrað. Mér skilst að það séu nokkrar á leiðinni hérna inn í þingið. Alltaf með þeim orðum að þær séu lagðar fram til að sameina,“ sagði Bjarni.

Kröftum væri betur varið í að sameinast um afstöðu sem hann fyndi engan grundvallarmun á í þinginu, og koma henni skilmerkilega á framfæri. 

„Sjáum að ríkisstjórnin talar ekki einu máli“

Heimir Már, fréttamaður, ræddi við Sigmar Guðmundsson, þingmann Viðreisnar og Þórhildi Sunnu Ævarsdóttur, þingmann Pírata, um tillögurnar sem báðir flokkarnir hafa lagt fram. 

Þórhildur sagði tillögu Pírata ganga út á kalla eftir tafarlausu vopnahléi á Gaza og að Ísland fordæmi aðgerðir Ísraelshers gagnvart óbreyttum borgurum.

Sigmar sagði tillögu Viðreisnar snúast um að það sé Alþingi sem fordæmi hryðjuverk og og yfirgengileg viðbrögð Ísraelsmanna við þeim, kalli eftir mannúðarhléi og að gíslum verði hleypt lausum sem allra fyrst.

 Okkur finnst mikilvægt að þingið komi beint að málinu vegna þess að við sjáum að ríkisstjórnin talar ekki einu máli.

Aðspurður um hvort hægt væri að sameina þessar tillögur í eina sagði Sigmar muninn sá að Píratar vilji að utanríkisráðherra fordæmi árásirnar en Viðreisn að þingið geri það. Hann ætti hins vegar sjálfur ekki erfitt með að greiða atkvæði með tillögu Pírata. Báðar þingályktunartillögurnar verða væntanlega teknar fyrir á Alþingi á næstu vikum. 


Tengdar fréttir

Stjórnarþingmenn flytja tillögu um ákall eftir vopnahléi

Hópur þingmanna hefur smíðað þingsályktunartillögu um að fordæma aðgerðir Ísraelshers í Palestínu og kalla eftir tafarlausu vopnahléi af mannúðarástæðum. Tveir þingmenn Vinstri grænna eru flutningsmenn tillögunnar.

Vilja að stjórn­völd for­dæmi að­gerðir Ísraels

Búist er við því að fólk fjölmenni á stórfund til stuðnings Palestínu í Háskólabíó í dag að sögn eins skipuleggjanda. Yfirvöld í Ísrael hafa gefið fólki á Gasa svæðinu fjórar klukkustundir til að flýja.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×