Innlent

Saga Garðars sakar ráð­herra um heiguls­hátt

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Nokkur fjöldi fólks hefur tekið sér stöðu gegnt Ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu.
Nokkur fjöldi fólks hefur tekið sér stöðu gegnt Ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu. vísir/Vilhelm

Hópur fólks mætti ráðherrum ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur við Ráðherrabústaðinn í morgun með hrópum og köllum. Hópurinn krefst þess að ríkisstjórnin fordæmi þjóðarmorð Ísraela og krefjist vopnahlés strax.

„Fordæmið þjóðarmorð“, „vopnahlé strax“, „burt með Bjarna“ og „burt með Katrínu“ er meðal þess sem hópurinn öskrar háum rómi meðan ríkisstjórnin fundar.

Saga Garðarsdóttir leikkona og uppistandari er meðal þeirra sem mótmæla.

„Mér er gjörsamlega nóg boðið. Ég hef mótmælt áður og ég geri það aftur. Það er ekki hægt að horfa upp á þetta, að gera ekki neitt. Ég trúi ekki að við ætlum ekki að fordæma þetta,“ segir Saga.

Lætin eru mikil í Tjarnargötu eins og heyra má í myndbandinu að neðan.

Ísland var ekki meðal þjóða sem greiddi atkvæði með tillögu Jórdaníu á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna á dögunum. Noregur var eina þjóðin sem greiddi atkvæði með á meðan hinar Norðurlandaþjóðirnar sátu hjá.

Getum fordæmt allt ofbeldi

Saga gefur ekki mikið fyrir hvernig ríkisstjórnin hefur brugðist við ástandinu fyrir botni Miðjarðarhafs. Henni finnst ríkisstjórnin hafa brugðist heigulslega vel.

„Mér finnst ótrúlegt að hún sé ekki búin að fordæma þetta og ýta undir, krefjast vopnahlés.“

Mótmælendur láta vel í sér heyra.Vísir/vilhelm

Þrátt fyrir smæð Íslands geti Ísland ýmislegt gert að mati Sögu.

„Við getum verið skýr og fordæmt allt ofbeldi, og krafist vopnahlés. Það getum við gert.“

Hún segir sorg í sínu hjarta. Á meðan kallar hópurinn „frjáls frjáls Palestína“.

Gasaströndin líkist grafreit

Antonio Guterres, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, segir Gasaströndina líkjast grafreit fyrir börn og kallar eftir tafarlausu vopnahlé.

Heilbrigðisráðuneyti Gasastrandarinnar, sem Hamas stýrir, segir rúmlega tíu þúsund manns hafa fallið í árásum Ísraela. Þar af séu rúmlega 4.100 börn látin.

„Gasaströndin er að verða grafreitur fyrir börn. Hundruð drengja og stúlkna eru sögð deyja eða særast á hverjum degi,“ sagði Guterres, samkvæmt frétt Reuters.

Sveinn Rúnar Hauksson, fyrrverandi formaður Félagsins Ísland Palestína, segir ríkisstjórnina vel geta krafist vopnahlés.

Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfis- og orkumálaráðherra segir alla á einu máli að vilja ljúka ofbeldinu fyrir botni Miðjarðarhafs.

Magga Stína sagði ríkisstjórnina vera fullkomlega óhæfa og siðlausa. 


Tengdar fréttir

Segir Ísrael munu taka yfir öryggisgæslu á Gasa í einhvern tíma

Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísrael, sagði í viðtali sem sýnt var á ABC í gær að Ísrael myndi axla ábyrgð á öryggismálum á Gasa í einhvern tíma eftir að átökunum sem nú standa yfir lýkur, þar sem menn hefðu séð hvað gerðist þegar aðrir væru við stjórnvölinn.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×