Lífið samstarf

Bein út­sending: Höfundar lesa í Hannesarholti

Forlagið

Í kvöld klukkan átta fer fram Bókakonfekt Forlagsins í Hannesarholti, Grundarstíg 10.

Þar troða höfundar Forlagsins upp og kynna bækur sínar fyrir gestum, spjalla um þær og lesa upp úr þeim. Upplestrarkvöldin eru fyrir löngu orðin fastur liður í vetrardagskrá bókaáhugafólks og þar myndast notalegt og hátíðlegt andrúmsloft.

Bryddað verður upp á þeirri nýjung í ár að streyma beint frá Bókakonfektinu og er hægt að horfa á útsendinguna hér fyrir neðan. Útsending hefst klukkan 20:

Eftirfarandi höfundar munu lesa upp í kvöld:

  • Lilja Sigurðardóttir – Dauðadjúp Sprunga
  • Einar Kárason – Heimsmeistari
  • Gunnar Theodór – Stjörnuljós
  • Alexander Dan – Seiðstormur
  • Hildur Knúts – Hrím
  • Nanna Rögnvaldar – Valskan
  • Margrét Tryggva – Stolt og Íslensk myndlist
  • Brynhildur Þórarins – Smáralindar-móri
  • Þórdís Helgadóttir - Armeló

Léttar veitingar í boði fyrir þá sem mæta á staðinn. Bækur höfunda verða seldar á staðnum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×