Fótbolti

Svona var blaða­manna­fundur Blika fyrir leikinn á móti toppliðinu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Halldór Árnason stýrir liði Blika á móti Gent í Laugardalnum annað kvöld en hann hittir fjölmiðlamenn í dag.
Halldór Árnason stýrir liði Blika á móti Gent í Laugardalnum annað kvöld en hann hittir fjölmiðlamenn í dag. Getty/Isosport

Breiðablik spilar við belgíska félagið KAA Gent í Sambandsdeild Evrópu á Laugardalsvellinum annað kvöld. Þjálfari og leikmenn Blika ræddu við fjölmiðlamenn í dag og það má sjá fundinn hér á Vísi.

Halldór Árnason þjálfari liðsins og Höskuldur Gunnlaugsson, fyrirliði liðsins, fóru yfir undirbúning Blika fyrir leikinn og við hverju megi búast í þessum leik á móti þessu sterka belgíska félagi.

Þetta er annar heimaleikur Blika og verður fjórði leikur liðsins í riðlakeppninni sem er sú fyrsta hjá íslensku karlaliði í sögunni. Jafnframt er þetta fjórtándi Evrópuleikur Breiðabliks á tímabilinu.

Þrír fyrstu leikir Blika í riðlinum hafa tapast en liðið hefur skorað tvö mörk í þeim. Mótherjinn annað kvöld er mjög sterkur en KAA Gent er á toppi riðilsins með markatöluna 8-1.

Gent vann 5-0 sigur á Blikum þegar liðin mættust í Belgíu í síðustu umferð en Belgarnir komust þá í 3-0 eftir aðeins tuttugu mínútna leik.

Þetta verður fyrsti heimaleikur Breiðabliks undir stjórn nýja þjálfara síns Halldórs Árnason. Hann talaði um leikinn við Gent og leikmannamál félagsins á fundinum. Önnur íslensk félög eru í fríi á meðan Blikar leita allra leiða til að undirbúa liðið sitt sem best fyrir þessa krefjandi leiki.

Hér fyrir neðan má horfa á blaðamannafund Blika.

Klippa: Blaðamannafundur Blika



Fleiri fréttir

Sjá meira


×