Fótbolti

Bendir á einn afar já­kvæðan punkt í endur­komu Gylfa Þórs

Aron Guðmundsson skrifar
Age Hareide, landsliðsþjálfari Íslands er spenntur fyrir verðandi félagsskiptum Gylfa Þórs
Age Hareide, landsliðsþjálfari Íslands er spenntur fyrir verðandi félagsskiptum Gylfa Þórs Vísir/Getty

Åge Hareide, landsliðsþjálfari íslenska karlalandsliðsins í fótbolta sat fyrir svörum á blaðamannafundi í dag eftir að landsliðshópur Íslands fyrir lokaleiki liðsins í undankeppni EM var opinberaður.

Ísland mætir Slóvakíu og Portúgal í tveimur útileikjum í næstu viku. Möguleikarnir á því að tryggja sér sæti á EM á næsta ári með því að komast beint upp úr riðlinum eru til staðar en eru litlir og því er Hareide einnig að horfa til mögulegra umspilsleikja í gegnum Þjóðadeild UEFA í mars á næsta ári til að tryggja EM sætið.

Á blaðamannafundinum í dag var Åge meðal annars spurður út í Gylfa Þór Sigurðsson sem sneri aftur í íslenska landsliðið í síðasta landsliðsverkefni og gerði sér lítið fyrir og sló markamet liðsins í leiðinni. 

Gylfi er kominn á gott skrið með Lyngby í dönsku úrvalsdeildinni eftir rúmlega tveggja ára fjarveru frá boltanum og er Åge í reglulegum samskiptum við hann til að fylgjast með þróun mála. 

„Ég hef talað reglulega við hann undanfarið. Honum líður vel og segist vera að taka framförum. Hann gerir miklar kröfur á sjálfan sig og vill ná fyrri styrk. Það er einn afar jákvæður punktur í hans málum því hingað  til hefur hann ekki hlotið neitt bakslag í endurkomu sinni á völlinn.“

Það þurfi hins vegar að passa vel upp á hann í komandi leikjum. 

Fram undan eru tveir erfiðir leikir. Við verðum því að vera með skýra mynd af því hversu mikið við getum lagt á hann.“

Landsliðsþjálfarinn er gífurlega ánægður með að geta nýtt sér krafta Gylfa Þórs. 

„Hann er mikilvægur hluti af hópnum. Ég er mjög ánægður með að hann sé mættur aftur og hafi slegið þetta met.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×