Sport

Katrín Tanja sefur undir stjörnunum í ævin­týra­ferð

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Katrín Tanja Davíðsdóttir fær heldur betur að prófa nýja hluti með kærasta sínum Brooks Laich.
Katrín Tanja Davíðsdóttir fær heldur betur að prófa nýja hluti með kærasta sínum Brooks Laich. @katrintanja

Íslenska CrossFit konan Katrín Tanja Davíðsdóttir hefur leyft sér að hlaða aðeins batteríin eftir heimsleikana í CrossFit síðasta haust og þá er gott að eiga mikinn ævintýramann fyrir kærasta.

Katrín Tanja keppti ekki á Rogue Invitational mótinu á dögunum og næst á dagskrá er væntanlega bara að hefja fyrir alvöru undirbúninginn fyrir næsta tímabil.

Það er samt enn tími fyrir frekari ævintýri og þau skötuhjúin hafa verið að auglýsa árlega ævintýrahelgi.

Katrín Tanja segist líka vera mjög spennt fyrir Destination Defender ævintýraferð sem hún ætlar að eyða við hlið kærasta síns Brooks Laich út í náttúrunni og með fullt af áhugasömu ævintýrafólki.

Helgin verður haldin í kringum Somerville í Texas fylki sem er mitt á milli Austin og Houston í suðurhluta fylkisins.

Katrín og Brooks munu meðal annars fara saman fyrir fimm kílómetra víðavangshlaupi þar sem er mælt með því að taka hundinn þinn með. Þau eru náttúrulega bæði hundaeigendur reyndar eru þeir í mismunandi stærðarflokki.

Katrín mun líka bjóða upp á góða æfingu á bæði laugardag og sunnudag. Virka pásan hjá okkar konu er auðvitað mjög virk.

Hótelplássin seldust fljótt upp en þá er bara að taka Katrínu Tönju sér til fyrirmyndar og tjalda út í náttúrunni.

„Ég er svo spennt að fá að sofa undir stjörnunum, reyna á ökuleikni mína, læra af meistarakokkum, hlaupa 5 km hlaup með Brooks Laich, Kodaboy og öllum þeim sem vilja vera með. Það er líka vona á svo miklu meira þannig að ég veit ekki alveg hverju ég á von,“ skrifaði Katrín Tanja á samfélagsmiðla sína.

Hér fyrir neðan má sjá Katrínu Tönju kynna helgina fyrir fylgjendum sínum. Ef Instagram færslan birtist ekki er gott ráð að endurhlaða fréttina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×