Skoðun

Nýtum betur og njótum verðmætanna

Ívar Kristinn Jasonarson skrifar

Ef metnaðarfull markmið stjórnvalda í loftslagsmálum eiga að nást er mikilvægt að auka hringrás auðlinda hér á landi. Sjálfbær nýting auðlinda verður sífellt mikilvægari. Hringrásarhagkerfið byggir á að lágmarka auðlindanotkun eins og kostur er og viðhalda verðmætum þeirra auðlinda sem eru teknar í notkun eins lengi og mögulegt er.

Hringrásarhlutfall Íslands var metið í fyrsta sinn í nýlegri greiningu sem Guðmundur Steingrímsson vann í samvinnu við sjálfbærniteymi KPMG á Íslandi. Hringrásarhlutfall er mælikvarði á hversu mikið af því efni sem notað er hérlendis er endurnýtt innan hagkerfisins með einum eða öðrum hætti. Niðurstöður greiningarinnar sýna að þetta hlutfall er aðeins 8,5% hérlendis. Þetta þýðir að 91,5% af efninu er ekki nýtt aftur innan hagkerfisins.

Við Íslendingar lifum í miklu neyslusamfélagi en hér jafngildir efnisfótspor á hvern íbúa þreföldu heimsmeðaltali. Helmingur þessarar neyslu er jarðefnaeldsneyti í ýmsu formi. Við notum bensín og olíu m.a. til að knýja samgöngur á landi, lofti og láði. Jarðefnaeldnseyti er einnig notað til að framleiða ýmsar vörur sem við neytum hér. Þótt jarðefnaeldsneytið sé svo hátt hlutfall verður líka að hafa í huga að við búum betur en margar þjóðir, með vinnslu okkar á raforku úr endurnýjanlegum orkugjöfum.

Fast á hæla jarðefnaeldsneytis koma svo efnasambönd utan málma, aðallega innlent grjót, sandur og möl en einnig innflutt sement og önnur byggingarefni.

Einblínt á níu prósent

Um helmingur þeirra efna sem notuð eru hérlendis enda í mannvirkjum um ókomin ár, um 31% efnanna fer úr hagkerfinu í formi útblásturs og 11% í formi skólps. Athygli vekur að um 9% endar sem sorp og þar af einungis um 1% sem heimilissorp. Þó hefur mestu púðri í átt að aukinni hringrás hér á landi verið eytt í aðgerðir sem tengjast endurvinnslu sorps. Sú staðreynd kristallast í stefnu stjórnvalda og nýjum hringrásarlögum sem tóku gildi nú í upphafi árs. Endurvinnsla sorps er að sjálfsögðu mikilvæg aðgerð en til að stuðla að uppbyggingu hringrásarhagkerfis hér á landi er nauðsynlegt að horfa víðar.

Niðurstöður greiningar Guðmundar sýna nefnilega að til að stuðla að frekari hringrás auðlinda hér á landi er ekki síður mikilvægt að huga að orkukerfinu og mannvirkjageiranum. Þar spilar Landsvirkjun, orkufyrirtæki þjóðarinnar, lykilhlutverk bæði sem stærsti raforkuframleiðandinn og sem það fyrirtæki sem ræðst í stærstu framkvæmdir á landinu.

Landsvirkjun vinnur raforku einungis úr endurnýjanlegum auðlindum auk þess sem okkar vara er eðli málsins samkvæmt umbúðalaus og veldur ekki losun við notkun. Þá dregur aukin raforkuvinnsla úr þörf á notkun jarðefnaeldsneytis sem er óendurnýjanleg auðlind. Starfsemi Landsvirkjunar fellur því einstaklega vel að hringrásarhagkerfinu.

Græn orka ýti grárri burt

Með því að auka vinnslu á raforku úr endurnýjanlegum auðlindum verðum við ekki eins háð jarðefnaeldsneyti og nú er. Við þurfum að virkja til þessara orkuskipta. Við hjá Landsvirkjun erum með verkefni á teikniborðinu sem vonandi skila nýrri orku á næstu árum. Við styðjum líka við orkuskipti innanlands með öðrum hætti, m.a. með þróun rafeldsneytisframleiðslu og í gegnum staðbundnu samstarfsverkefnin Bláma á Vestfjörðum, Eim á Norðurlandi, Orkídeu á Suðurlandi og Eygló á Austurlandi sem öll vinna að orkutengdri nýsköpun og aukinni hringrás auðlinda.

Mikið af byggingarefnum þarf í byggingu nýrra aflstöðva og mikilvægt að huga vel að hönnun og efnisvali. Vistferilsgreiningar á núverandi aflstöðvum okkar sýna að stærsti hluti efnisspors þeirra er stál, steypa og jarðefni, auk þess jarðefnaeldsneytis sem notað var á framkvæmdatíma. Við leggjum því sérstaka áherslu á að lágmarka áhrif þessara þátta við hönnun og byggingu nýrra virkjana. Við notum innra kolefnisverð við ákvarðanatöku í hönnun og útboðum nýrra virkjana og leggjum áherslu á vistvæna kosti við efnisval.

Viðhald er verðmæti

Það er ekki síður mikilvægt að hámarka líftíma þeirra aflstöðva sem nú þegar hafa verið teknar í notkun til að halda virði þeirra auðlinda sem í þær fóru sem lengst í hagkerfinu. Þess vegna leggjum við okkur fram við að sinna viðhaldi þeirra eins vel og kostur er. Gott dæmi um það er elsta aflsstöðin, Ljósafossstöð, sem er enn í fullu fjöri 86 ára gömul.

Orkufyrirtæki þjóðarinnar mun halda áfram að leggja sitt af mörkum til að styðja við hringrásarhagkerfið á Íslandi, m.a. með því að auka öflun endurnýjanlegrar orku, styðja við orkuskipti og orkutengda nýsköpun og stuðla að vistvænni mannvirkjagerð.

Ívar Kristinn er sérfræðingur á deild loftslags og grænna lausna hjá Landsvirkjun.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Skoðun

Sjá meira


×