Fótbolti

Þrenna Mbappe lyfti PSG í topp­sætið

Smári Jökull Jónsson skrifar
Mbappe fagnar fyrsta marki sínu í leiknum í dag.
Mbappe fagnar fyrsta marki sínu í leiknum í dag. Vísir/Getty

Kylian Mbappe var maðurinn á bakvið sigur PSG gegn Reims í frönsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.

Mikið var rætt um framtíð Kylian Mbappe í sumar og hann meðal annars settur út úr æfingahópi PSG í sumar eftir að hafa neitað að skrifa undir nýjan samning við félagið.

Hann var þó fljótlega tekinn inn aftur og verið á skotskónum síðan þá. Í dag var hann einmitt allt í öllu þegar PSG mætti Reims á útivelli. Fyrir leikinn var PSG í öðru sæti deildarinnar en Reims í því fjórða, fjórum stigum á eftir.

Mbappe var ekki lengi að láta til skarar skríða. Hann skoraði fyrsta mark leiksins á 3. mínútu og kom PSG síðan í 2-0 með marki á 59. mínútu.

Hann fullkomnaði þrennuna á 82. mínútu og tryggði PSG góðan 3-0 sigur. PSG fer þar með upp í efsta sæti deildarinnar en liðið er einu stigi á eftir Nice í öðru sætinu..




Fleiri fréttir

Sjá meira


×