Innlent

Of seint að breyta tryggingum Grind­víkinga

Árni Sæberg skrifar
Leiða má að því líkur að innbú margra þessara húsa séu ekki tryggð gagnvart náttúruhamförum.
Leiða má að því líkur að innbú margra þessara húsa séu ekki tryggð gagnvart náttúruhamförum. Vísir/Vilhelm

Náttúruhamfaratrygging Íslands segir að þar sem búið sé að lýsa yfir neyðarástandi í Grindavík og rýma bæinn sé ljóst að ekki megi gera nýja vátryggingarsamninga eða breyta eldri samningum um eignir í bænum.

Í tilkynningu á vef Náttúruhamfaratryggingar Íslands segir að í aðdragandanum að þeim atburðum sem nú standa yfir í Grindavík hafi forstjóri NTÍ notað hvert tækifæri til að hvetja íbúa á Suðurnesjum til að yfirfara sína vátryggingavernd til að sem flestir séu hæfilega tryggðir ef til atburða kæmi.

Það sé hins vegar svo að í reglugerð um Náttúruhamfaratryggingu Íslands er kveðið á um að óheimilt sé að gera nýja vátryggingarsamninga eða breyta eldri samningum um eignir á þeim stað eða svæði, sem í hættu er þegar vátryggingaratburður er hafin eða hann er yfirvofandi.

„Þar sem nú er búið að lýsa yfir neyðarástandi í Grindavík og rýma bæinn er mikilvægt að ljóst sé að þessi grein hefur verið virkjuð og lítur NTÍ svo á að allir nýir samningar eða breytingar á eldri samningum á því svæði sem nú er skilgreint hættusvæði séu ógildir.“

Innbú ekki tryggt nema sérstaklega sé um það samið

Náttúruhamfaratrygging Íslands er opinber stofnun sem hefur það hlutverk að vátryggja húseignir og mannvirki gegn tjóni af völdum náttúruhamfara, eins og jarðskjálfta, eldgosa, skriðufalla, snjóflóða og vatnsflóða.

Tilvist hennar er nauðsynleg þar sem hefðbundnar tryggingar vátryggingafélaga tryggja ekki gegn tjóni sem verður vegna náttúruhamfara.

Stofnunin tryggir húseignir, innbú og lausafé, sem er brunatryggt hjá vátryggingafélagi með íslenskt starfsleyfi gagnvart náttúruhamförum. Hins vegar er það svo að tryggja þarf innbú og lausafé sérstaklega, slík trygging er ekki innifalin í lögbundinni brunatryggingu.

Í frétt Vísis frá árinu 2021, þegar jörð tók fyrst að skjálfa á Reykjanesi, segir að lauslega áætlað sé talið að allt að þrjátíu prósent innbúa og lausafjár heimila og fyrirtækja hér á landi séu ekki tryggð fyrir tjóni sem getur orðið vegna náttúruhamfara.

„Reynslan okkar úr atburðum er að það er mjög oft vantryggt eða ótryggt, bæði í litlum og stórum fyrirtækjum, innbú og lausafé og býsna algengt með heimili fólks að þá hefur það ekki gert ráðstafanir varðandi innbús- eða heimilistryggingu, sem bruni er innifalinn í, vegna þess að það er fast í að brunatryggingin sé skylda og því sé allt í góðu lagi,“ sagði Hulda Ragnheiður Árnadóttir, framkvæmdastjóri Náttúruhamfaratryggingar Íslands þá.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×