Innlent

Eldur í í­búð við Klappar­stíg

Atli Ísleifsson skrifar
Útkallið kom um klukkan 12:30.
Útkallið kom um klukkan 12:30. Vísir

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út eftir að tilkynnt var um eld í íbúð við Klapparstíg 1 í dag.

Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði er eldurinn einskorðaður við íbúð á efri hæðum hússins.

Fjórir slökkviliðsbílar og körfubíll voru sendir á vettvang og er slökkvilið nú að störfum.

Útkallið kom um klukkan 12:30.

Uppfært klukkan 13:07

Búið er að slökkva eldinn og verið er að reykræsta. Ekkert liggur fyrir upptök eldsins.

Að neðan má sjá myndband og myndir frá vettvangi.

Vísir/Einar



Vísir/Einar
Eldur2Vísir
Vísir/Lillý
Vísir/Lillý
Vísir/Lillý



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×