Sport

Anníe Mist: Konur fara á blæðingar og við þurfum að ræða það

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Anníe Mist Þórisdóttir hefur aflað sér mikillar reynslu á frábærum ferli sínum.
Anníe Mist Þórisdóttir hefur aflað sér mikillar reynslu á frábærum ferli sínum. @anniethorisdottir

Anníe Mist Þórisdóttir hefur sterka rödd innan CrossFit samfélagsins og vill meðal annars berjast fyrir að íþróttakonur fái ráð sem eru hönnuð og hugsuð fyrir þær en ekki útfærslu á ráðum fyrir íþróttakarla.

Kynin eru ólík á margan hátt og það er eitt sem skilur þau örugglega alveg að. Það er tíðahringurinn sem karlar þurfa ekki að hafa neinar áhyggjur af en hefur gríðarleg áhrif á hormónaflæði kvenna.

„Konur fara á blæðingar og við þurfum að ræða það svo að við getum unnið með það, skrifaði Anníe á samfélagsmiðlinum Instagram.

@anniethorisdottir

Anníe Mist benti um leið sérstaklega á fyrirlestur hjá bandaríska lífseðlis- og næringarfræðingnum Stacy Sims sem er aðgengilegur á TEDx Talks síðunni á Youtube. Hún hefur sérhæft sig í mismuninum á kynjunum.

Fyrirlesturinn heitir: Konur eru ekki litlir karlar: Nýtt viðmið í vísindum næringarfræðinnar.

„Ég hef hlustað nokkrum sinnum á þennan fyrirlestur og það er svo gott fyrir allar konur og karlþjálfara að heyra þetta," skrifaði Anníe. Íþróttakonurnar þurfa að vita hvar þær standa og ef karlar eru að þjálfa konur þá er lykilatriði að þeir viti betur hvaða ástand konur eru að glíma við einu sinni í mánuði.

Fyrirlesturinn fer meðal annars yfir það hvernig tíðahringurinn hefur áhrif á æfingaferli íþróttakvenna sem þýðir oft að þær eru orkulausar þrátt fyrir að borða vel og gera sömu æfingar og karlarnir. Stacy telur að svarið liggi að í kynjaslagsíðu.

Hér áður fyrr voru rannsóknir á næringu íþróttamanna framkvæmdar á körlum og litið á það sem svo að það kæmu fram sömu niðurstöður hjá konum. Stacy fer vel yfir það af hverju þetta sé hreinlega rangt. Hún vill hver kona spyrji spurninga þegar kemur að því að fylgja karllægum niðurstöðum rannsókna.

Það má horfa á fyrirlesturinn fyrir neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×