Innlent

Sigur­bergur í Fjarðar­kaupum látinn

Jakob Bjarnar skrifar
Sigurbergur Sveinsson andaðist 90 ára að aldri. Hann var Hafnfirðingur í húð og hár og lét til sín taka í bæjarfélaginu.
Sigurbergur Sveinsson andaðist 90 ára að aldri. Hann var Hafnfirðingur í húð og hár og lét til sín taka í bæjarfélaginu. aðsend/vísir/vilhelm

Sigurbergur Sveinsson kaupmaður, sem lengstum var kenndur við Fjarðarkaup í Hafnarfirði, lést á Landspítalanum Háskólasjúkrahúsi 12. nóvember síðastliðinn, 90 ára að aldri.

Sigurbergur var áberandi í Hafnarfirði í sinni tíð, hann hafði mikinn áhuga á íþróttum; hann var einn af stofnendum Golfklúbbsins Keilis og mikill stuðningsmaður Knattspyrnufélagsins Hauka. Þá lét hann borðtennis, stundaði stangaveiði og var góður skákmaður. Hann var félagi í Kiwanisklúbbnum Eldborg í Hafnarfirði og studdi Skógræktarfélag Hafnarfjarðar og fleiri félög í heimabyggð sinni.

Þá kemur fram í tilkynningu frá ættingjum að hann hafi verið mikill áhugamaður um varðveislu kirkjunnar í Selárdal. „Sigurbergur hafði mikla ánægju af lestri góðra bóka og var fróðleiksfús enda fjölfróður og minnugur.“

Sigurbergur var borinn og barnfæddur Hafnfirðingur, fæddist þar 15. apríl 1933, sonur Sveins Þorbergssonar og Jónínu Bjargar Guðlaugsdóttur. Frá 6 ára til 15 ára aldurs ólst hann upp að Húsum í Selárdal hjá hjónunum Ólafi Waage og Ingibjörgu Þórðardóttur. Hann lauk landsprófi frá Flensborgarskóla 1952, stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík 1955 og útskrifaðist viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands 1962.

„Árið 1955 hóf Sigurbergur störf hjá Slökkviliði Keflavíkurflugvallar og var aðstoðarslökkviliðsstjóri árið 1968 þegar hann hætti. Hann rak eigið bókhaldsfyrirtæki þar til hann stofnaði verslunina Fjarðarkaup ásamt eiginkonu sinni Ingibjörgu Gísladóttur og hjónunum Bjarna Blomsterberg og Valgerði Jónsdóttur árið 1973. Sigurbergur og Ingibjörg tóku alfarið við rekstrinum árið 1993 ásamt fjölskyldu sinni,“ segir í tilkynningu.

Eins og áður segir var eiginkona Sigurbergs Ingibjörg Gísladóttir, þau kynntust árið 1952 en hún lést árið 2009. Börn þeirra eru Hjördís, Rósa, Sveinn og Gísli, barnabörnin og barnabarnabörnin eru 24 talsins. Eftirlifandi sambýliskona Sigurbers er Kolbrún Svavarsdóttir.

Útför Sigurbergs fer fram frá Víðistaðakirkju miðvikudaginn 22. nóvember klukkan 15.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×