Innlent

Úr­ræði fyrir grindvísk skóla­börn tekin í gagnið í næstu viku

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Fannar Jónasson er bæjarstjóri Grindavíkur. Stjórnsýsla bæjarins er komin með aðsetur í ráðhúsi Reykjavíkur, svo áfram megi reka sveitarfélagið.
Fannar Jónasson er bæjarstjóri Grindavíkur. Stjórnsýsla bæjarins er komin með aðsetur í ráðhúsi Reykjavíkur, svo áfram megi reka sveitarfélagið. Vísir

Fannar Jónasson, bæjarstjóri í Grindavík, segir að fyrstu formlegu úrræði grindvískra skólabarna verði tekin í gagnið í skólum í Reykjavík á miðvikudaginn. Þetta segir hann á upplýsingafundi Almannavarna sem haldinn var í Skógarhlíð í dag.

„Við erum að reyna að bæta upplýsingagjöf eins og við mögulega getum. Aðeins talandi um fræðslumálin þá fór mikil vinna í gang strax síðustu helgi á vegum fræðslusviðsins okkar og kennara, skólastjóra í grunnskólum og leikskólum að reyna að halda óskiptu skólahaldi fyrir börnin og ég get sagt frá því að fyrstu formlegu úrræðin verða tekin í gagnið í skólum Reykjavíkurborgar hér á miðvikudaginn kemur.“

Eðlilegt að skólinn sé ekki í forgangi

Hann segir einnig að verið sé að reyna að koma leikskólamálum í réttan farveg. Hann segist einnig vita að eðlilegt sé að fólk setji ekki skólann í forgang þegar það veit ekki hver búsetuúrræði þeirra verði næstu vikurnar.

„Sama er að segja um leikskólamálin, við erum að reyna er að koma þeim í réttan farveg. Það er eðlilegt að fólk sem ekki veit um framtíð sína eða búsetuúrræði næstu vikurnar sé ekki endilega að setja það í forgang að setja börnin sín í skóla núna, ef þau verða kannski tekin upp eftir stuttan tíma og færð annað. En þetta er allt gert með hagsmuni barnanna í huga.“

Atvinnurekendur komi sér fyrir á höfuðborgarsvæðinu

Fannar segir að Grindavíkurbær sé komin í þéttara samband við grindvísk fyrirtæki og að mikilvægt sé að þau geti haldið sem minnst skertri starfsemi áfram í nærliggjandi sveitarfélögum.

„Eitt af því sem veldur auðvitað fólki áhyggjum fjárhagslega er að missa vinnuna sína. Þá rofni ráðningarsamband við vinnuveitendur. Ríkisstjórnin hefur brugðist vel við því. Við erum núna komin í þéttara samband við fyrirtækin og erum að fá tilboð frá ýmsum aðilum um að atvinnurekendur í Grindavík geti komið sér fyrir hérna á höfuðborgarsvæðinu og haldið sem minnst skertri starfsemi áfram. Það er einn af þessum lykilþáttum sem skipta máli og við erum að fá góða aðstoð við.“



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×