Fótbolti

Emilía á skotskónum og marka­hæst í Dan­mörku

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Emilía Kiær Ásgeirsdóttir er að spila einkar vel þessa dagana.
Emilía Kiær Ásgeirsdóttir er að spila einkar vel þessa dagana. FC Nordsjælland

Emilía Kiær Ásgeirsdóttir skoraði eitt marka Nordsjælland í 3-0 sigri á AaB í dönsku úrvalsdeild kvenna í knattspyrnu. Emilía Kiær er markahæst í deildinni með átta mörk.

Hin 18 ára gamla Emilía var að venju í byrjunarliði Nordsjælland og braut ísinn með marki undir lok fyrri hálfleiks, staðan 1-0 í hálfleik.

Í síðari hálfleik bætti toppliðið við tveimur mörkum og vann Nordsjælland öruggan 3-0 sigur. Liðið situr nú á toppi deildarinnar með 23 stig að loknum 11 leikjum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×