Innlent

„Skiljan­legt að Grind­víkingar vilji fá meiri vissu“

Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar
Lilja segir að of snemmt sé að segja hverjar aðgerðir bankans í málum Grindvíkinga verði að svo stöddu. 
Lilja segir að of snemmt sé að segja hverjar aðgerðir bankans í málum Grindvíkinga verði að svo stöddu.  Stöð 2

Kallað hefur verið eftir að bankar sýni samfélagslega ábyrgð vegna bankalána Grindvíkinga. Bankastjóri Landsbankans segir að gott samtal um stöðu Grindvíkinga milli bankans og stjórnvalda eigi sér nú stað. 

„Það er skiljanlegt að Grindvíkingar vilji fá einhverja meiri vissu og betri svör ég skil það vel, það er mikil óvissa. Bankarnir eru með samtökum fjármálafyrirtækja í mjög góðu samtali við stjórnvöld um að koma með heildstæða lausn,“ sagði Lilja Björk Einarsdóttir bankastjóri Landsbankans í Kvöldfréttum Stöðvar 2. 

„Og þarna þurfa margir aðilar að vinna saman,“ segir Lilja og nefnir stjórnvöld, sveitarstjórn og vátryggjendur.  „Þannig að við erum sannarlega hluti af þessu samtali og viljum gera eins vel og við getum gagnvart Grindvíkingum. “

Þetta er náttúrlega mjög vítt svar. Í fljótu bragði, hvað væri hægt að gera?

„Við erum bara vinna að því og það hefur auðvitað verið kallað á eftirgjöf vaxta og verðbóta. Það er auðvitað eitt af því sem kemur til greina en það þarf bara að líta í mjög mörg horn. Það þarf að vinna vel saman og við erum að því,“ segir Lilja og þakkar stjórnvöldum fyrir góðar viðtökur. 

„Og það skiptir öllu máli að reyna að minnka óvissuna en við erum auðvitað í miðjum náttúruhamförum líka þannig að svörin eru ekki öll til staðar,“ segir Lilja. 

Einhverjir Grindvíkingar hafa áhyggjur af því að eignir þeirra verði verðlausar, eiga menn að vera í bandi við ykkur eða kemur bara ein lausn sem allir njóta góðs af?

„Það er alltaf gott að vera í sambandi við sinn banka en það er of snemmt að segja til um hvernig þetta verður allt. Það eru svo margir aðilar sem koma að svona málum og við erum einn af þeim og algjörlega tilbúin og erum í því samtali núna.“


Tengdar fréttir

Frekari aðgerðir fyrir Grindvíkinga til skoðunar

Aðgerðir til að koma til móts við Grindvíkinga eru til skoðunar hjá Landsbankanum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá bankanum. Samskipti við stjórnvöld um næstu skref séu hafin.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×