Sport

Ó­létt Anníe Mist lyfti 150 kílóum sex sinnum í röð eins og ekkert væri

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Anníe Mist Þórisdóttir er enn að lyfta þungu þrátt fyrir að vera komin nokkra mánuði á leið.
Anníe Mist Þórisdóttir er enn að lyfta þungu þrátt fyrir að vera komin nokkra mánuði á leið. @anniethorisdottir

Anníe Mist Þórisdóttir er ekki hætt að lyfta og æfa þótt að hún eigi von á sínu öðru barni á næsta ári.

Anníe tilkynnti það á dögunum að hún eigi von á barni í byrjun maí eða eftir rúma fimm mánuði. Hún kom fljótt og mjög öflug aftur til baka þegar hún eignaðist Freyju Mist sína fyrir rúmum þremur árum. Anníe komst á verðlaunapall á heimsleikunum innan við ári síðar.

Anníe æfði grimmt á þeirri meðgöngu og heldur því áfram núna. Það er þó erfitt fyrir meðalkonuna að leika það eftir sem okkar CrossFit goðssögn er að gera þessa dagana.

Anníe hefur verið að sýna frá æfingum sínum á samfélagsmiðlum og sérstaka athygli vakti ein lyftingaræfing hennar á dögunum.

Anníe segist hafa sérstaklega gaman af réttstöðulyftunni og hún þar lyftir hún enn þungu þrátt fyrir óléttuna.

Anníe sýndi sig þannig lyfta 150 kílóum sex sinnum í röð eins og ekkert væri eðlilegra.

„Mér fannst ég vera sterk í dag og hafði gaman,“ skrifaði Anníe en hér fyrir neðan má sjá hana lyfta þessari miklu þyngd eins og ekkert. Ef Instagtam færslan birtist ekki er gott ráð að endurhlaða fréttina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×