Lífið

Leikari úr Línu lang­sokk látinn

Atli Ísleifsson skrifar
Fredrik Ohlsson fór með hlutverk pabba Tomma og Önnu í þáttunum og myndunum um Línu Langsokk. Hér sést þegar hann reynir að kenna Línu pílukast. Lína reyndist þó öllu betri í íþróttinni en hann.
Fredrik Ohlsson fór með hlutverk pabba Tomma og Önnu í þáttunum og myndunum um Línu Langsokk. Hér sést þegar hann reynir að kenna Línu pílukast. Lína reyndist þó öllu betri í íþróttinni en hann. Skjálskot

Sænski leikarinn Fredrik Ohlsson, sem þekktastur er fyrir að hafa farið með hlutverk föður Tomma og Önnu í þáttunum og kvikmyndunum um Línu Langsokk, er látinn. Hann varð 92 ára gamall.

Eiginkona Ohlsson, söngkonan Siw Malmkvist, staðfesti andlátið í samtali við sænska fjölmiðla í gær. Ohlsson lést á laugardaginn en hann hafði glímt við erfið veikindi um nokkurt skeið.

„Þetta verður mjög tómlegt,“ segir Malmkvist í samtali við Aftonbladet. Hún segir að læknar hefðu varað aðstandendur við fyrir nokkru að hann ætti ekki langt eftir en að heilsu hans hafi hrakað mun hraðar en fjölskyldan átti von á.

Ohlsson átti langan leiklistarferil að baki og starfaði lengi í leikhúsum á borð við Uppsala stadsteater og Dramaten í Stokkhólmi. Þá birtist hann í fjölda sjónvarpsþátta og kvikmynda.

Sjónvarpsþættirnir og kvikmyndirnar um Línu langsokk voru framleiddar á árunum 1969 til 1973.


Tengdar fréttir

„Al­freð í Katt­holti“ tók á móti heiðurs­verð­launum

Sænski leikarinn Björn Gustafsson, sem flestir Íslendingar þekkja fyrir að hafa farið með hlutverk vinnumannsins Alfreð í kvikmyndunum um Emil í Kattholti, tók á móti heiðursverðlaunum á sænsku kvikmyndahátíðinni, Guldbaggen, í gærkvöldi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×