Íslenski boltinn

Kennie fylgir Rúnari til Fram

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Kennie Chopart lék með KR í átta tímabil.
Kennie Chopart lék með KR í átta tímabil. vísir/diego

Daninn Kennie Chopart, fyrrverandi fyrirliði KR, er genginn í raðir Fram. Þar hittir hann fyrir Rúnar Kristinsson, gamla þjálfarann sinn hjá KR.

Kennie skrifaði undir eins árs samning við Fram sem endaði í 10. sæti Bestu deildarinnar á síðasta tímabili.

Hinn 33 ára Kennie hefur leikið hér á landi frá 2012, ef frá er talið tímabilið 2014, fyrst með Stjörnunni, svo Fjölni og loks KR. Hann varð Íslandsmeistari með KR 2019 og var fyrirliði liðsins á síðasta tímabili.

Kennie hefur spilað 216 leiki í efstu deild á Íslandi og skorað 36 mörk. Alls hefur hann leikið 296 keppnisleiki fyrir lið hér á landi.

Í síðasta mánuði var Rúnar ráðinn þjálfari Fram til næstu þriggja ára.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×