Innlent

Ætla að fylgjast grannt með að­gerðum bankanna

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Lilja Björk Einarsdóttir yfirgefur fundinn í morgun. Hún hefur verið bankastjóri Landsbankans í tæp sjö ár.
Lilja Björk Einarsdóttir yfirgefur fundinn í morgun. Hún hefur verið bankastjóri Landsbankans í tæp sjö ár. vísir/vilhelm

Þingmaður Framsóknarflokksins segir Alþingi munu fylgjast vel með aðgerðum bankanna er varða fólk og fyrirtæki í Grindavík. Gripið verði til aðgerða þyki þinginu bankarnir ekki standa sína vakt.

Bankastjórar stóru bankanna þriggja voru boðaðir á fund efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis í morgun. Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka, Jón Guðni Ómarsson bankastjóri Íslandsbanka og Lilja Björk Einarsdóttir bankastjóri Landsbankans sóttu fundinn.

„Við vildum taka þá snemma inn. Mér finnst mikilvægt að allir finni að það eru allir saman í þessu. Það standi allir vaktina. Heyra hvað er að gerast hjá bönkunum,“ segir Ágúst Bjarni Garðarsson sem kallaði eftir því að bankastjórarnir kæmu á fundinn.

Ágúst Bjarni Garðarsson er fulltrúi Framsóknarflokksins í nefndinni.vísir/vilhelm

Hann segist nokkuð ánægður með tóninn í bönkunum að loknum fundi.

„Við munum þurfa að halda áfram að fylgjast með stöðunni. Mér heyrist allir vera á þeim nótum að þeir skynji sína ábyrgð.“

Horfa þurfi til lagaumgjarðarinnar í því samhengi. Þá verði að öllum líkindum fundað að nýju á föstudag og málinu fylgt eftir. Hann sagði tóninn hjá bankastjórunum mjög líkan.

Mikil óvissa er hvort og hvenær Grindvíkingar geta snúið aftur til síns heima. Enn eru líkur á eldgosi sem gæti orðið í bænum eða nánasta umhverfi hans.vísir/einar

„Það átta sig allir á sinni ábyrgð,“ segir Ágúst Bjarni.

Bankarnir þrír hafa boðið Grindvíkingum upp á að frysta lán sín sem þó safna vöxtum og verðbótum.

Grindvíkingar hafa kallað eftir því að ekki þurfi að greiða vexti á lánunum í einhvern tíma.

Ágúst Bjarni segir að áfram verði fylgst með því á Alþingi að bankarnir standi með fólki og fyrirtækjum í Grindavík.

„Það verður að öllum líkindum fundur hjá nefndinni á föstudag sem sýnir að þinginu er alvara. Við munum fylgjast með aðgerðum bankanna og beita þeim úrræðum sem þarf ef ekki er nóg gert.“


Tengdar fréttir

Frekari aðgerðir fyrir Grindvíkinga til skoðunar

Aðgerðir til að koma til móts við Grindvíkinga eru til skoðunar hjá Landsbankanum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá bankanum. Samskipti við stjórnvöld um næstu skref séu hafin.

Geymsluhólf Landsbankans í Grindavík flutt úr bænum

Geymsluhólf sem voru í útibúi Landsbankans í Grindavík voru seinnipartinn í gær flutt í útibú bankans í Mjódd. Um 150 geymsluhólf var að ræða og verða þau aðgengileg fyrir viðskiptavini frá og með morgundeginum.

Krefja Grindvíkinga ekki um afborganir í bili

Stóru viðskiptabankarnir þrír bjóða Grindvíkingum allir upp á frystingu húsnæðislána vegna þeirrar stöðu sem uppi er í bænum. Fryst húsnæðislán safna þó vöxtum og verðbótum.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×