Sport

Ís­land á fimm CrossFit konur meðal þeirra tvö hundruð bestu í heimi

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Katrín Tanja Davíðsdóttir er fremsta CrossFit kona Íslands í dag samkvæmt nýja topp tvö hundruð listanum.
Katrín Tanja Davíðsdóttir er fremsta CrossFit kona Íslands í dag samkvæmt nýja topp tvö hundruð listanum. @katrintanja

Laura Horvath er heimsmeistari í CrossFit íþróttinni síðan í ágúst en hún er samt ekki í efsta sætinu á nýjum lista yfir tvö hundruð bestu CrossFit konur heims.

Brian Friend, stofnandi Bfriendlyfitness, hefur nú uppfært lista sinn yfir bestu CrossFit konurnar í dag.

Hann setur goðsögnina Tia-Clair Toomey-Orr í efsta sætið en Toomey var næstum því búin að vinna Horvath á Rogue Invitational á dögunum aðeins fimm mánuðum eftir að hún eignaðist sitt fyrsta barn í byrjun maí.

Engin íslensk CrossFit kona er meðal þeirra tólf efstu á listanum en þar eru aftur á móti tvær með sterka Íslandstengingu. Emma Lawson er þriðja og Gabriela Migala er í fimmta sæti en báðar hafa þær Snorra Barón Jónsson sem umboðsmann. Á milli þeirra í fjórða sætinu er síðan Mallory O’Brien sem keppti ekki á árinu 2023.

Ísland á fimm fulltrúa á listanum þar af þrjá þeirra meðal fimmtíu efstu.

Katrín Tanja Davíðsdóttir er efst íslenska konan á listanum en hún situr í þrettánda sætinu. Katrín náði bestu árangri íslensku stelpnanna á heimsleikunum þar sem hún endaði í sjöunda sæti. Hún hefur síðan tekið sér frí í haust til að hlaða batteríin og hefur það eflaust eitthvað með það að segja að heimsleikaframmistaðan skilar henni ekki ofar.

Anníe Mist Þórisdóttir er ekki á listanum að þessu sinni enda komin í barneignarfrí langt fram á næsta ári í það minnsta. Anníe hefði annars örugglega verið meðal tuttugu efstu en hún varð þrettánda á heimsleikunum í haust.

Næst af íslensku stelpunum, á eftir Katrínu Tönju, er Þuríður Erla Helgadóttir í 33. sæti. Þuríður Erla hefur keppt oft á heimsleikunum síðustu árin en tókst ekki að komast þangað í ár.

Hlutirnir hafa ekki alveg gengið upp hjá Söru Sigmundsdóttur síðustu árin en hún er samt enn inn á topp fimmtíu á listanum. Sara er nú í 48. sætinu og þriðja efst af íslensku stelpunum.

Sólveig Sigurðardóttir er eina íslenska konan í sætum 51 til 100 en hún er í 64. sæti listans. Sólveig náði ekki alveg að fylgja eftir 2022 þar sem hún sprakk fram á sjónarsviðið og komst alla leið inn á heimsleikana.

Oddný Eik Gylfadóttir er í 121. sæti listans og sú síðasta af þeim íslensku sem kemst á blað.

Vonandi fjölgar íslensku konunum í framtíðinni og ein sem getur farið að gera tilkall til sæti á listans er bronskonan Bergrós Björnsdóttir frá unglingakeppni heimsleikanna í haust.

Bergrós keppir næst á Wodapalooza í Miami í janúar og það verður gaman að fylgjast með henni taka vonandi næstu skref á árinu 2024. Hver veit nema að hún verði kominn inn á næsta lista í lok næsta árs.

Ef Instagram færslan hér að ofan birtast ekki er gott ráð að endurhlaða fréttina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×