Real Madrid tyllir sér á toppinn tíma­bundið

Siggeir Ævarsson skrifar
Rodrygo setti tvö í kvöld
Rodrygo setti tvö í kvöld Vísir/Getty

Real Madrid sótti Cádiz heim í kvöld og mátti ekki við því að misstíga sig í toppbaráttu spænsku úrvalsdeildarinnar.

Það kom á daginn Madrídingar reyndust töluvert sterkari á svellinum en gestgjafar Cádiz, sem eru tveimur stigum frá fallsæti eftir úrslit kvöldsins. 

Rodrygo kom gestunum yfir strax á 14. mínútu og var svo aftur á ferðinni á 64. Jude Bellingham gerði svo endanlega út um leikinn á 74. mínútu og Real Madrid komið í efsta sæti deildarinnar, stigi á undan Girona sem á leik til góða en liðið tekur á móti Athletic Club annað kvöld.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira