Skoðun

Ljósin eru að slökkna

Ágúst Ásgrímsson skrifar

Ég er nú vanur að berja mér á brjóst og sigra heiminn sama hvað á gengur. En nú er fokið í flest skjól. Konungur fuglanna, örninn hefur verið mitt tákn og drifkraftur í gegnum lífið sem bóndi og hefur það dugað þar til núna, því búið er að klippa af mér flugfjaðrirnar og klærnar.

Ég hef engin vopn í hendi mér til bjargar í mjólkurframleiðslunni frekar en aðrir bændur sem fóru í tilneyddar fjárfestingar vegna Evrópureglugerða sem þvinguðu bændur, annað hvort að stefna á að hætta mjólkurframleiðslu eða byggja nýtt fjós. Mat ég það þannig, það að bera titilinn Gústi bóndi væri 250 milljóna króna skulda virði.

Byggðum við nýtt hátæknifjós með tveimur mjaltaþjónum, jukum framleiðsluna vel yfir meðal bústærð með mikilli vinnuhagræðingu. Helmingi meiri mjólkurframleiðsla nú en áður og jafnvel styttri tími í fjósverkin. Þetta virtist stefna í eintóma hamingju. Við hjónin skilum hvort um sig að meðaltali 12 tímum í vinnu flesta daga ársins. Fyrir það á búið að greiða okkur í laun hvoru um sig um 360.000 í föst mánaðarlaun en þeir peningar eru ekki til staðar núna. Höfum við unnið nánast kauplaust í eitt og hálft ár.

Við erum orðnir þrælar, hlekkjaðir við aðstæðurnar. Einhverjir verða að mjólka en maður spyr sig! hvenær fær maður nóg??? Á maður bara að hætta, selja eignir, borga skuldir og búa á jörðinni skuldlausri með tærnar upp í loft og horfa á sólina setjast.

Enginn getur keypt svona jörð og rekið nema hann eigi 150 milljónir í vasanum og taki við skuldum uppá 200 milljónir og verður reksturinn samt í járnum. Enginn meðal maður getur fjárfest í kúabúi. Enginn nýliðun verður og meðalaldur bænda nálgast 60 ár. Bændur eldast og slíta sér endanlega út á meðan þeir sitja fastir á sínum búum og hafa ekki fjárráð á vinnumanni sér til aðstoðar.

Eftir 7 ár fer ég að fá peninga inn á reikninginn eins og flestir sem komast á aldur, u.þ.b. 200.000 krónur. Eftirlaunagreiðslan verður líklega hæstu laun sem ég hef lengi verið á.

Í tæp tvö ár hefur vaxtakostnaður verið að sliga þá bændur sem fóru í fjárfestingar í kringum 2014 til dagsins í dag.

Helstu aðföng til mjólkurframleiðslu hafa hækkað gríðarlega á síðustu árum. Áburður hefur hækkað um 140% . fóðurblanda um 40% og olía um 70%. Á sama tíma hefur verðlagsnefnd búvara hækkað mjólkurverð til bænda um ca. 25% frá 1. júní 2020. 2004 voru niðurgreiðslur á búvörum 45%, árið 2023 eru þær 20%. Þetta reikningsdæmi er hætt að ganga upp. Kostnaður eykst og niðurgreiðslur frá ríki hafa stórlega lækkað.

Þetta er ákall bóndans um skilning og hjálp!

Kúabændum er að fækka, ljósin eru að slökkna í fjósunum og verða ekki kveikt aftur.

Höfundur er kúabóndi.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Skoðun

Skoðun

Al­einn í heiminum?

Lukka Sigurðardóttir,Katrín Harðardóttir ,Margrét Kristín Blöndal skrifar

Sjá meira


×