Innlent

Í­búum hússins hleypt aftur heim

Margrét Björk Jónsdóttir skrifar
Allt tiltækt lið slökkviliðsins var kallað út um klukkan sex í morgun.
Allt tiltækt lið slökkviliðsins var kallað út um klukkan sex í morgun. Vísir

Íbúum hússins við Stangarhyl 3 í Árbæ í Reykjavík, þar sem eldur kom upp í morgun, hefur verið hleypt aftur inn í húsnæðið.

Eldurinn kviknaði um klukkan sex í morgun. Íbúum tókst að koma sér út af sjálfsdáðun fyrir utan einn sem var bjargað út og fluttur á slysadeild, þar sem hann liggur þungt haldinn. 

Fjöldi fólks safnaðist saman fyrir framan húsið og var viðbragsðteymi Rauða krossins kallað til. Odd­ur Freyr Þor­steins­son, upp­lýs­inga­full­trúi Rauða Kross­ins, segir í samtali við fréttastofu að fólkinu hafi verið komið fyrir í tímabundnu húsnæði og verið var að gera ráðstafanir með framhaldið þegar ljóst var að það gæti farið aftur heim. 

Í húsinu eru litlar íbúðareiningar og hafa allir íbúar nú snúið aftur heim til sín fyrir utan þá sem búa í íbúðinni sem eldurinn kom upp í. Oddur Freyr segir að viðbragðsaðilar hafi veitt sálræna fyrstu hjálp en bendir á að hægt sé að hringja í hjálparsíma Rauða krossins í síma 1717, vanti fólki stuðning eða líði illa.

Starfsmannaleigan Mönnun ehf er skráð til húsa í Stangarhyl 3 auk nokkurra einstaklinga. Rannsóknarlögregla hefur nú tekið yfir vettvanginn og rannsakar tildrög eldsins. 



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×