Innlent

Veit ekki til þess að hús­næðið sé sam­þykkt til bú­setu

Margrét Björk Jónsdóttir skrifar
Grunur lék á um að fólk væri fast inni í húsnæðinu þegar útkall barst um eld í Stangarhyl 3 í morgun.
Grunur lék á um að fólk væri fast inni í húsnæðinu þegar útkall barst um eld í Stangarhyl 3 í morgun. Vísir

Deildarstjóri á aðgerðarsviði slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins segist ekki vita til þess að húsnæðið við Stangarhyl 3 í Árbæ, þar sem eldur kom upp í morgun, sé samþykkt til búsetu. Maður á fertugsaldri er þungt haldinn. 

„Mér finnst mikilvægt að þeir sem bera ábyrgð á atvinnuhúsnæði þar sem fólk býr, að það sé hugað að öryggismálum. Að það sé tryggt eins og kostur er að húsnæðið sé eins öruggt.“ segir Vernharð Guðnason,  deildarstjóri á aðgerðarsviði slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins.

Hann segist ekki hafa upplýsingar um hvernig brunavörnum var háttað í húsinu en um iðnaðarhúsnæði er að ræða þar sem búið er á efri hæðinni.  Starfsmannaleigan Mönnun ehf er skráð til húsa í Stangarhyl 3 auk nokkurra einstaklinga. 

Eins og sjá má á myndbandinu hér að ofan lagði mikinn reyk frá húsinu.  Vernharð segir talsverða ringulreið hafa skapast þar sem ekki hafi verið ljóst hversu margir væru inni í húsinu. Reykkafarar björguðu einum út, manni á fertugsaldri, sem var fluttur á slysadeild þar sem hann liggur þungt haldinn. Tveir aðrir voru fluttir á slysadeild, annar með sjúkrabíl en lögregla keyrði hinn þar sem grunur lék á að hann væri með reykeitrun. 

Talsverðan tíma tók að staðsetja eldinn

Þegar gengið hafði verið úr skugga um að ekki væru fleiri inn í húsinu tók eiginlegt slökkvistarf við. 

„Það var mikill hiti og reykur inni, það tók okkur töluverðan tíma að staðsetja eldinn. En þegar það tókst vorum við nokkuð fljót að slökkva,“ segir Vernharð.

Mánuður frá eldsvoða í iðnaðarhúsnæði þar sem maður lést

Rúmur mánuður er liðinn síðan karlmaður lést í bruna í iðnaðarhúsnæði við Funahöfða 7 í Reykjavík.  

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, sagði það andlát hafa orðið vegna þess að pólitísk valdastétt hafi ekki gripið inn í. Hún sagði nauðsynlegt að setja verulegar hömlur á AirBNB leiguhúsnæði og ráðast í stórtæka uppbyggingu á ódýru húsnæði til að koma í veg fyrir að fleiri látist í eldsvoðum í ósamþykktu húsnæði.


Tengdar fréttir

Þungt haldinn eftir eldsvoða í Árbæ

Þrír voru fluttir á sjúkrahús eftir að eldur kom upp í húsnæði í Stangarhyl 3 í Árbæ í Reykjavík snemma í morgun. Einn er þungt haldinn.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×