Fótbolti

Logi skoraði sitt fyrsta mark fyrir Ströms­god­­set

Siggeir Ævarsson skrifar
Logi skoraði glæsilegt mark í dag
Logi skoraði glæsilegt mark í dag Twitter@godset

Víkingurinn Logi Tómasson skoraði sitt fyrsta mark fyrir Ströms­god­set í dag þegar liðið vann góðan 1-3 útisigur á Rosenborg.

Logi lék allan leikinn í byrjunarliði Ströms­god­set og var góður rómur gerður að frammistöðu hans sem hann kórónaði með laglegu marki þegar leiktíminn var um það bil að fjara út.

Þremur mínútum var bætt við venjulegan leiktíma en markið kom þegar leikklukkan sýndi 93:20 og kórónaði Logi þar með leik sinn og gulltryggði Ströms­god­set sigurinn. Markið má sjá í klippunni hér að neðan.

Bæði Ströms­god­set og Rosenborg sigla lygnan sjó um miðja deild, Ströms­god­set í 8. sæti með 39 stig og Rosenborg þar fyrir neðan í 9. sæti með 36.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×