Viðskipti innlent

ChangeGroup leysir Arion banka af hólmi

Árni Sæberg skrifar
Útibúum Arion banka í Leifsstöð verður lokað.
Útibúum Arion banka í Leifsstöð verður lokað. Vísir/Vilhelm

Alþjóðlega fyrirtækið ChangeGroup átti hagkvæmasta tilboðið í samkeppni um fjármálaþjónustu á Keflavíkurflugvelli og snýr því aftur í flugstöðina í byrjun febrúar 2024. Fyrirtækið verður með tvær gjaldeyrisskiptastöðvar á flugvellinum, eitt rými fyrir endurgreiðslu virðisaukaskatts og gjaldeyrishraðbanka víða um flugstöðina eftir þörfum.

Þetta segir í fréttatilkynningu frá Isavia. Þar segir að ChangeGroup sé alþjóðlegt fyrirtæki sem sérhæfir sig í fjármálaþjónustu á alþjóðaflugvöllum. Það hafi verið með samskonar rekstur í flugstöðinni á Keflavíkurflugvelli á tíunda áratug síðustu aldar.

Opnað hafi verið fyrir útboð fyrir fjármálaþjónustu á fyrra hluta þessa árs og þrjú fyrirtæki hafi sent inn lokatilboð. Boðinn hafi verið út, til fimm ára, rekstur gjaldeyrisþjónustu, hraðbanka og þjónustu vegna endurgreiðslu virðisaukaskatts á Keflavíkurflugvelli. 

Við mat á tilboðunum hafi verið horft til tveggja meginþátta, annars vegar fjárhagslegra og hins vegar tæknilegra þátta sem snúa að þjónustu við viðskiptavini, hönnun og sjálfbærni. Sérfræðiteymi hafi verið á bak við matsflokkana.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×