Fótbolti

Ísak lagði upp er Düsseldorf tryggði sér sæti í átta liða úr­slitum

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Ísak Bergmann Jóhannesson lagði upp jöfnunarmark Düsseldorf.
Ísak Bergmann Jóhannesson lagði upp jöfnunarmark Düsseldorf. Stefan Brauer/DeFodi Images via Getty Images

Ísak Bergmann Jóhannesson og félagar hans í Fortuna Düsseldorf eru komnir í átta liða úrslit þýsku bikarkeppninnar í knattspyrnu eftir ótrúlegan 1-2 endurkomusigur gegn Magdeburg í kvöld.

Ísak hóf leik á varamannabekk Düsseldorf í kvöld og voru það heimamenn í Magdeburg sem tóku forystuna strax á 15. mínútu þegar Baris Atik kom boltanum í netið. Reyndist það eina mark fyrri hálfleiksins og staðan var því 1-0 þegar liðin gengu til búningsherbergja.

Ísak kom svo inn á sem varamaður þegar um tuttugu mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma og hann lagði upp jöfnunarmark gestanna á 87. mínútu fyrir annan varamann Jona Niemiec, sem hafði komið inn af bekknum tveimur mínútum áður.

Niemiec var svo aftur á ferðinni í uppbótartíma þegar hann tryggði gestunum ótrúlegan endurkomusigur og þar með sæti í átta liða úrslitum þýsku bikarkeppninnar á kostnað Magdeburg.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×