Íslenski boltinn

Benoný samdi ekki við Gauta­borg

Sindri Sverrisson skrifar
Benoný Breki Andrésson er áfram leikmaður KR, að minnsta kosti að sinni.
Benoný Breki Andrésson er áfram leikmaður KR, að minnsta kosti að sinni. Stöð 2 Sport

Ekkert varð af því að hinn 18 ára gamli KR-ingur, Benoný Breki Andrésson, skrifaði undir samning við sænska knattspyrnufélagið Gautaborg í gær eins og til stóð.

Benoný ferðaðist til Gautaborgar en í samtali við Gautaborgar-Póstinn segir Ola Larsson, íþróttastjóri hjá IFK Gautaborg, að ekkert verði af samningnum.

Samkvæmt upplýsingum Vísis náðist einfaldlega ekki samkomulag um kaup og kjör.

„Það er erfitt fyrir mig að tjá mig um alla leikmenn sem skrifað er um. En nú er ljóst að hann var hérna. En í þessu tilfelli þá endaði það ekki með neinum samningi,“ sagði Ola Larsson við GP.

Benoný Breki kom til KR frá Bologna á Ítalíu í vor og skoraði níu mörk í 25 leikjum í Bestu deildinni í sumar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×