Fótbolti

Veru­legt tap hjá KSÍ: „Afar ó­sann­gjarnt ef þetta endar þannig“

Sindri Sverrisson skrifar
Vanda Sigurgeirsdóttir, formaður KSÍ, bendir á að mikill kostnaður hafi fylgt því að halda Laugardalsvelli opnum til loka nóvember. Þörfin fyrir nýjan þjóðarleikvang er knýjandi.
Vanda Sigurgeirsdóttir, formaður KSÍ, bendir á að mikill kostnaður hafi fylgt því að halda Laugardalsvelli opnum til loka nóvember. Þörfin fyrir nýjan þjóðarleikvang er knýjandi. vísir/Einar

Gert er ráð fyrir því að Knattspyrnusamband Íslands verði rekið með verulegu tapi á árinu 2023. Góður árangur félags- og landsliða veldur þessu, sérstaklega vegna vinnu við að halda Laugardalsvelli leikhæfum í nóvember, en þjálfaraskipti A-landsliðs karla kostuðu einnig sitt.

Þetta kemur fram í nýjustu fundargerð stjórnar KSÍ á vef sambandsins. Þar er bent á að kostnaður hafi hlotist af því að bæði íslensku U19-landsliðin skyldu ná þeim framúrskarandi árangri að komast í lokakeppni EM í sumar, sem og af aukaleik U20-landsliðs kvenna um sæti á HM í Kólumbíu, sem fram fór á Spáni.

Vanda Sigurgeirsdóttir, sem er á sínu lokaári sem formaður KSÍ, segir að rekstrarhallinn sé hins vegar að stóru leyti tilkominn vegna kostnaðar við að halda Laugardalsvelli leikhæfum til loka nóvember, vegna þátttöku Breiðabliks í Sambandsdeild Evrópu.

Tugmilljóna kostnaður við að hafa völlinn leikhæfan

Leiga á sérstakri hitapulsu kostaði til að mynda 20 milljónir króna, og þá er ótalinn kostnaður til að mynda við hótel og uppihald vegna ensks starfsfólks sem fylgdi pulsunni, og laun starfsfólks KSÍ sem annaðist völlinn dag og nótt. Vonir eru bundnar við að ríkið taki á sig þennan kostnað vegna stöðu vallarmála hér á landi.

„Það er auðvitað afar ósanngjarnt ef þetta endar þannig að KSÍ, eitt sérsambanda, þarf að bera kostnað af því að halda þessum þjóðarleikvangi opnum. Mér finnst fyrir neðan allar hellur ef þetta endar þannig. Ég vona að ríkið komi inn og taki á þessu máli,“ segir Vanda í samtali við Vísi. Enn virðist engin ákvörðun liggja fyrir hjá stjórnvöldum.

„Við vitum að þetta er í vinnslu og reynum að vera bjartsýn. Þeir sem við höfum rætt við hafa tekið jákvætt í beiðnina,“ segir Vanda og dregur ekki dul á að rekstur KSÍ sé búinn að vera afar erfiður.

„Helmingurinn af þessu tapi er út af því að við erum að halda vellinum opnum. Það er ekkert annað sérsamband í þessari stöðu. Á sama tíma erum við eina sérsambandið sem ekkert fær úr Afrekssjóði,“ bendir Vanda á.

Úr fundargerð stjórnar KSÍ frá 29. nóvember:

Gert er ráð fyrir að sambandið verði rekið með verulegu tapi árið 2023, m.a. vegna árangurstengdra verkefna sem voru ekki í fjárhagsáætlun 2023 (úrslitakeppni U19 karla og kvenna og aukaleikur um laust sæti á HM U20 kvenna í Kólumbíu), þjálfaraskipta A landsliðs karla og aukins kostnaðar við flug og uppihald A landsliða. Stjórnin ræddi ítarlega hvort hægt sé að draga úr rekstrartapinu með mótvægisaðgerðum á lokametrum ársins. Óvissa er um þann kostnað sem fellur á KSÍ til þess að halda Laugardalsvelli leikhæfum til loka nóvember, en lagt hefur verið hart að stjórnvöldum að taka á sig þennan kostnað enda er bágborin vallaraðstaða ekki á ábyrgð KSÍ.


Tengdar fréttir

„Stolt, þakklát og auðmjúk“

Vanda Sigurgeirsdóttir segir að fyrra starf hafi kallað aftur á hana og að hún vilji snúa sér aftur að ástríðu sinni. Hún hefur ákveðið að hætta sem formaður KSÍ.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×