Innlent

Mikið á­lag á nýju leigutorgi fyrir Grind­víkinga

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Leigurogið var opnað klukkan tvö í dag.
Leigurogið var opnað klukkan tvö í dag. Vísir/Ívar Fannar

Leigutorg fyrir Grindvíkinga var opnað síðdegis og 150 íbúðir hafa verið skráðar þar til leigu. Fjármálaráðherra segir brýnt að kortleggja húsnæðisþörf Grindvíkinga og tryggja þeim skjól.

Leigutorgið svokallaða opnaði klukkan 14 í dag og er þar að finna 150 íbúðir sem ætlaðar eru Grindvíkingum til leigu. Íbúðirnar er flestar að finna á höfuðborgarsvæðinu og Suðurnesjum.

„Þetta er liður í því að mæta þörfum Grindvíkinga, til viðbótar við það sem áður hefur verið kynnt varðandi kaup á íbúðum, en líka við leigustyrk, launastuðning og aðra þætti. Þetta er mikilvægt skref sem við vonumst til að geta gengið frá sem allra, allra fyrst,“ segir Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, fjármála- og efnahagsráðherra.

Eru þetta aðallega íbúðir á vegum Bjargs eða líka í einkaeigu?

„Þetta er samblanda af íbúðum  á lausu. Við sendum út auglýsingu fyrir viku síðan og óskuðum eftir íbúðum sem væri hægt að taka á leigu og þetta er útkoman,“ segir Þórdís. 

„Við erum að reyna að gera þetta eins hratt og mögulegt er en líka þannig að það hafi sem minnst skaðleg áhrif á ríkissjóð varðandi lántökur og aðra slíka hluti. Þetta er skilvirkt og vonandi eins hagkvæmt og mögulegt er en fyrst og síðast til að mæta þörfum Grindvíkinga, þannig að þau hafi skýr svör um hvar þau geti verið á næstu vikum og mánuðum.“

Mjög mikil ásókn var á leigusíðuna í dag, sérstaklega fyrsta korterið en þá var varla hægt að komast inn á síðuna. 

„Þetta kemur ekkert á óvart. Þetta er fólk sem er að bíða eftir svörum um sína framtíð þannig að það auðvitað leggur það á sig að vera snöggt til.“


Tengdar fréttir

Leigutorg opnað fyrir Grindvíkinga

Svokallað leigutorg, fyrir íbúa Grindavíkur, verður opnað á Ísland.is klukkan 14 í dag. Þar geta íbúar Grindavíkur skoðað leiguíbúðir, sem ætlaðar eru þeim sérstaklega, og voru skráðar eftir að óskað var eftir húsnæði til að leysa húsnæðisvanda Grindvíkinga. 

Setja á fót leigu­torg að­eins ætlað Grind­víkingum

Stjórnvöld leita nú að leiguhúsnæði fyrir Grindvíkinga sem hafa þurft að yfirgefa heimili sín. Eigendum fasteigna gefst nú kostur á að skrá íbúð sína til leigu á sérstöku leigutorgi sem eingöngu er ætlað Grindvíkingum.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×